Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Kristín Ólafsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 2. mars 2021 12:44 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Vísir/Vilhelm Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið.
Þetta sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttamann okkar að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Fram hefur komið að Áslaug Arna hringdi tvisvar í Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag vegna Ásmundarsalarmálsins. Áslaug kveðst hafa hringt í Höllu til að spyrja út í verklagsreglur um dagbókarfærslur lögreglu og persónuverndarsjónarmið. Innt eftir því fyrir utan Ráðherrabústaðinn í morgun hvort eðlilegt hefði verið að skrá símtöl við lögreglustjóra sagði Áslaug að ekki hefði verið krafa um slíkt. Hún ætti mörg símtöl „vegna upplýsinga“ og þess væri ekki krafist að hún skráði slík símtöl. Skoða mætti hvort rétt hefði verið að skrá símtölin eða hafa ráðuneytisstjóra viðstaddan. Þá kvaðst hún oft hringja í lögregluna til að fá ýmiss konar upplýsingar. Bað Bjarni [Benediktsson fjármálaráðherra] þig um að grennslast fyrir um þessi mál hjá lögreglunni? „Nei,“ svaraði Áslaug. Það var algjörlega að þínu frumkvæði? „Já, ég fékk spurningar frá fjölmiðlum sem ég þurfti að svara og ákvað síðan að svara ekki.“ Hátt í fimmtíu manns voru samankomnir í Ásmundarsal í Reykjavík á Þorláksmessu. Lögregla hafði afskipti af samkomunni og greindi frá því í dagbókarfærslu til fjölmiðla að morgni aðfangadags að „einn háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands“ hefði verið á staðnum. Síðar staðfesti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að hann hefði verið í salnum.
Ráðherra í Ásmundarsal Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Lögreglan Tengdar fréttir Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04 Segir ekkert óeðlilegt við samskipti sín og lögreglustjóra Dómsmálaráðherra segir ekkert hafa verið óeðlilegt við símtöl hennar við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögreglan upplýsti að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra var meðal gesta í Ásmundarsal þar sem sóttvarnareglur voru brotnar. 25. febrúar 2021 19:32 Hefur boðað Áslaugu á fund vegna samskipta hennar og lögreglustjóra Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á það við Jón Þór Ólafsson, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra komi fyrir nefndina sem fyrst til. 25. febrúar 2021 17:08 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Innlent Fleiri fréttir Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Sjá meira
Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04
Segir ekkert óeðlilegt við samskipti sín og lögreglustjóra Dómsmálaráðherra segir ekkert hafa verið óeðlilegt við símtöl hennar við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögreglan upplýsti að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra var meðal gesta í Ásmundarsal þar sem sóttvarnareglur voru brotnar. 25. febrúar 2021 19:32
Hefur boðað Áslaugu á fund vegna samskipta hennar og lögreglustjóra Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á það við Jón Þór Ólafsson, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra komi fyrir nefndina sem fyrst til. 25. febrúar 2021 17:08