Mamma mín er ekki horfin!

Myndin af Raynu Foss sem birtist á WVUE.
Myndin af Raynu Foss sem birtist á WVUE. Ljósmynd/WVUE

Fyrir fjórum mánuðum lýsti héraðssjónvarpsstöðin WVUE í New Orleans í Bandaríkjunum eftir konu. Rayna Foss var sögð vera 51 árs gömul, 160 sm á hæð og 90 kg að þyngd en engar upplýsingar lágu fyrir um klæðaburð. Þá kom fram í upplýsingum frá lögreglu að seinast hefði verið vitað um ferðir hennar 7. september nærri sambýlinu sem hún bjó á. Þeim sem gátu mögulega gefið upplýsingar var bent á að hafa þegar í stað samband við lögreglu.

Leið nú og beið þangað til í vikunni að rokkmiðlar vestra fóru að gera sér mat úr málinu enda Foss kunn úr málmheimum; átti aðild að nýmálmbandinu Coal Chamber í kringum aldamótin. Plokkaði þar bassa. Það varð til þess að málið upplýstist – Raynu Foss er alls ekki saknað. Það staðfesti dóttir hennar, Kayla Rose, á Instagram-reikningi sínum daginn eftir að fréttin fór sem eldur í sinu um rokkheima.

„Þið öll, sem hafið haft samband, og fjölmiðlar, sem hafa verið að segja fréttina: Leyfið mér að upplýsa málið. Ég hef séð alla póstana um að móðir mín, Rayna, sé horfin síðan í september og hef ekki grænan grun um hvaðan þessar sögur koma. Ég ræddi síðast við móður mína í gær og sambandið hefur aldrei slitnað. Amma mín og afi hafa líka verið í sambandi við móður mína, og við vitum öll upp á hár hvar hún er niður komin. Ég hef sent lögreglunni í New Orleans upplýsingar þar um og bíð svars.“

Ennfremur sagði hún: „Ég vona að það verði ekkert næsta skipti en ef það gerist mega menn gjarnan kynna sér málið áður en þeir birta fréttir sínar. Þannig má komast hjá því að valda fjölskyldu minni óþægindum.“ 

Svo mörg voru þau orð.

Nánar er fjallað um þetta dularfulla mál í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg