Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Samúel Karl Ólason skrifar 11. september 2021 08:12 AP/Jae C. Hong Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll.
Í einni rannsókninni var fylgst með rúmlega 600 þúsund manns úr þrettán ríkjum sem smituðust frá apríl til júlí, þegar delta-afbrigði nýju kórónuveirunnar var í töluverðri dreifingu víða um Bandaríkin. Þar komust vísindamenn að því að óbólusettir voru 4,5 sinnum líklegri til að smitast en fullbólusettir. Þeir voru rúmlega tíu sinnum líklegri til að þurfa á sjúkrahús og ellefu sinnum líklegri til að deyja, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. „Bólusetningar virka,“ sagði Dr. Rochelle Walensky, yfirmaður CDC á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Hún sagði einnig að af þeim sem lagðir voru inn á sjúkrahús í júní og júlí voru fjórtán prósent fullbólusettir. Sextán prósent þeirra sem dóu á þessu tímabili voru bólusettir. Aðrar rannsóknir sem birtar voru í gær benda til þess að dregið hafi úr þeirri vörn sem bólusetningar gefa gegn Covid-19. Í frétt AP segir að enn sé þó óljóst hvort það sé vegna þess að virkni bólusetninga minnki, hvort virkni bóluefna sé verri gegn delta-afbrigðinu eða vegna þess að víða í Bandaríkjunum var dregið úr grímunotkun og öðrum sóttvörnum, samhliða aukinni dreifingu delta-afbrigðisins. Skikka fólk í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að skylda ætti alla starfsmenn alríkisstjórnar Bandaríkjanna í bólusetningu og settar yrðu reglur um að allir vinnustaðir þar sem fleiri en hundrað starfa eigi að tryggja bólusetningu starfsmanna sinna eða sjá til þess að þeir séu skimaðir vikulega vegna Covid-19. Sjá einnig: Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Í frétt New York Times segir að bandarískir vísindamenn séu sannfærðir um að tregða margra til að láta bólusetja sig hafi gert faraldur kórónuveirunnar í Bandaríkjunum verri og lengri. Rannsóknirnar sem CDC birti í gær séu vatn á millu þeirra. Um áttatíu milljónir Bandaríkjamanna hafa neitað að láta bólusetja sig. Kannanir sína mikinn meirihluta Bandaríkjamanna hlynnta því að herða reglurnar varðandi bólusetningar í skólum, sjúkrahúsum og vinnustöðum. Kannanir sína einnig að flestir bólusettir kjósendur kenna óbólusettum og ekki ríkisstjórn Bandaríkjanna um það að faraldur kórónuveirunnar hafi versnað í Bandaríkjunum í sumar.
Bandaríkin Joe Biden Bólusetningar Tengdar fréttir Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10. september 2021 08:00 Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta. 8. september 2021 12:11 Vilja koma böndum á notkun ormalyfs gegn Covid-19 Heilbrigðissérfræðingar og hópar heilbrigðisstarfsmanna í Bandaríkjunum verja þessa dagana miklu púðri í að reyna að koma í veg fyrir notkun gamals ormalyfs gegn Covid-19. Varað er við því að notkun lyfsins geti valdið skaðlegum hliðarverkunum og lítið sé um sönnunargögn um að lyfið hjálpi raunverulega gegn veirunni. 4. september 2021 13:30 Langvarandi Covid helmingi fátíðara hjá fullbólusettum Rannsakendur við King's College London hafa komist að þeirri niðurstöðu að bólusetningar gegn Covid-19 dragi ekki bara úr líkunum á því að smitast og veikjast alvarlega, heldur séu fullbólusettir síður líklegir til að þjást af langvarandi einkennum. 2. september 2021 07:44 Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum. 31. ágúst 2021 07:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10. september 2021 08:00
Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta. 8. september 2021 12:11
Vilja koma böndum á notkun ormalyfs gegn Covid-19 Heilbrigðissérfræðingar og hópar heilbrigðisstarfsmanna í Bandaríkjunum verja þessa dagana miklu púðri í að reyna að koma í veg fyrir notkun gamals ormalyfs gegn Covid-19. Varað er við því að notkun lyfsins geti valdið skaðlegum hliðarverkunum og lítið sé um sönnunargögn um að lyfið hjálpi raunverulega gegn veirunni. 4. september 2021 13:30
Langvarandi Covid helmingi fátíðara hjá fullbólusettum Rannsakendur við King's College London hafa komist að þeirri niðurstöðu að bólusetningar gegn Covid-19 dragi ekki bara úr líkunum á því að smitast og veikjast alvarlega, heldur séu fullbólusettir síður líklegir til að þjást af langvarandi einkennum. 2. september 2021 07:44
Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum. 31. ágúst 2021 07:51