2020 nálægt því að vera heitasta ár frá upphafi mælinga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. janúar 2021 11:36 Slökkviliðsmaður sést hér berjast við skógarelda í San Mateo í Kaliforníu í ágúst í fyrra. Getty/Liu Guanguan Síðasta ár keppir við árið 2016 um að vera heitasta árið frá upphafi mælinga samkvæmt útreikningum vísindamanna hjá nokkrum erlendum stofnunum. Samkvæmt útreikningum einnar stofnunar, bandarísku geimferðarstofnunarinnar NASA, er árið reyndar það heitasta en með naumindum þó.
Útreikningar bresku veðurstofunnar og bandarísku sjávar- og loftslagsstofnunarinnar (NOAA) sýna að 2020 var eilítið kaldara en 2016 en útreikningar loftslagsrannsókna Evrópusambandsins sýna að árin voru jafnheit. „Síðustu sjö ár hafa verið heitustu árin frá upphafi mælinga,“ segir Abira Sánchez-Lugo, sérfræðingur hjá NOAA, í samtali við Washington Post. Þótt mælingar mismunandi stofnana gefi ekki alveg sömu niðurstöður varðandi það hvað ár er það heitasta þá undirstrika öll gögn langtíma hlýnun jarðar af mannavöldum. Að því er fram kemur í frétt Guardian hafa nú verið 44 ár í röð þar sem hitastig á jörðinni hefur verið hærra en meðaltalið á 20. öld. Gavin Schmidt, stjórnandi hjá NASA, segir þetta ekki „nýja normið“ heldur eigi hitastigið eftir að hækka meira. Miklar náttúruhamfarir urðu víða um heim á liðnu ári, meðal annars skógareldar í Síberíu, Ástralíu, Suður-Ameríku og Kaliforníu, sem raktir eru til hlýnunar jarðar. „Þetta var svo sannarlega ár eldanna. Frá hrikalegum eldum í Ástralíu til elda í stærstu mýrum Suður-Ameríku til strandar Kaliforníu, þá urðu þessir eldar í fyrra vegna mikilla þurrka og hlýnunar í nokkrum heimsálfum,“ segir Merritt Turetsky, vísindamaður við háskólann í Colorado.
Loftslagsmál Umhverfismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Fleiri fréttir Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Sjá meira