Lykilmenn ekki með gegn Íslandi

Raheem Sterling sækir á Guðlaug Victor Pálsson í leik liðanna …
Raheem Sterling sækir á Guðlaug Victor Pálsson í leik liðanna á Laugardalsvellinum í september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir af lykilmönnum enska landsliðsins í knattspyrnu verða ekki með í leiknum gegn Íslandi á Wembley í Þjóðadeild UEFA á miðvikudaginn vegna meiðsla.

Fyrr í dag var greint frá því að Jor­d­an Hend­er­son, fyr­irliði Eng­lands­meist­ara Li­verpool, yrði frá í nokkrar vikur en hann fór meiddur af velli í hálfleik í 2:0-tapi Englands gegn Belgum í gær.

Raheem Sterling, sóknarmaður Manchester City, tók ekki þátt í þeim leik vegna meiðsla í kálfa en Gareth Soutgate, landsliðsþjálfari Englands, hefur nú staðfest að hann nær ekki leiknum gegn Íslandi heldur. Sky Sports segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert