Endurkoma Söru – myndskeið

Sara Björk Gunnarsdóttir í þreksal Lyon.
Sara Björk Gunnarsdóttir í þreksal Lyon. Ljósmynd/@OLfeminin

Franska knattspyrnufélagið Lyon heldur áfram að fjalla um endurkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur landsliðsfyrirliða í leikmannahópinn og hefur birt myndskeið af fyrsta degi hennar.

Þar má sjá Söru ávarpa leikmannahópinn á fundi, æfa í þreksalnum og síðan segir Sara frá því hvernig sé að koma aftur eftir barnsburð og hvernig hún ætli að byggja sig upp dag frá degi með það að markmiði að spila á ný með Lyon.

Myndskeiðið er í Twitter-færslunni hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert