Ætla að kaupa bóluefni fyrir 70 prósent þjóðarinnar hið minnsta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. nóvember 2020 12:55 Alma Dagbjört Möller, landlæknir. Vísir/vilhelm
Ekki er ljóst á þessari stundu hversu marga skammta af bóluefni gegn Covid-19 Ísland mun kaupa eða frá hvaða framleiðendum. Þó er stefnt að því að kaupa bóluefni fyrir 70 prósent þjóðarinnar hið minnsta. Þetta kemur fram á vef Landlæknis. Þar er vísað til nýlegra frétta um stöðuna á opinberum innkaupum á bóluefnum gegn COVID-19 og um undirbúning á framkvæmd bólusetningarinnar þegar til hennar kemur. Fyrir liggur að kaup Íslands á bóluefnum gegn COVID-19 munu fara fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur undirritað samninga við fjóra framleiðendur, þ.e. Astra-Zeneca, Janssen, Sanofi/GSK og Pfizer/BioNTech og eru samningar við fleiri framleiðendur í burðarliðnum. Ekki ljóst hve marga skammta við fáum Svíþjóð hefur tekið að sér það hlutverk að hafa milligöngu um að framselja Íslendingum bóluefni á grundvelli samninga Evrópusambandsins. „Á þessari stundu er ekki ljóst hversu marga skammta af bóluefni Ísland mun kaupa eða frá hvaða framleiðendur þeir verða keyptir. Hins vegar en stefnt að því að kaupa bóluefni fyrir a.m.k. 70% þjóðarinnar,“ segir í tilkynningu landlæknis. „Ef við náum 80-90% þjóðarinnar í bólusetningu þá verður hægt að aflétta mjög hratt,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundinum í dag. Hann á von á metingi þegar bólefni kemur til landsins varðandi hverjir fái fyrst. Tekið verði á því þegar þar að kemur. Ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst Tveir bóluefnaframleiðendur, Pfirzer og Moderna, hafi undanfarið birt fréttir af góðum árangri sinna bóluefna. Rétt sé að árétta að öll bóluefnin munu þurfa samþykki og leyfi frá Evrópsku lyfjastofnuninni (EMA) áður en almenn notkun hefst. „Á þessari stundu er því ekki ljóst hvenær almenn dreifing bóluefna hefst og því síður hversu hratt einstaka þjóðir munu fá það magn sem áætlað er að kaupa. Það er því ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst hér á landi þó að vonir séu bundnar við að hún geti hafist á fyrri hluta næsta árs.“ Undirbúningur að bólusetningu er hafinn undir stjórn sóttvarnalæknis og vonast er til að honum ljúki fyrir lok árs 2020. Unnið er m.a. að forgangsröðun hópa í bólusetninguna, dreifingu bóluefnanna og skráningu hinna bólusettu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira