Lenti vél Icelandair án heimildar eftir óhapp á Keflavíkurflugvelli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. október 2020 22:10 Boeing 757-200 vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Samskonar vél og var lent án heimildar umræddan dag. Vísir/Vilhelm
Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar nú tvö atvik sem komu upp á Keflavíkurflugvelli eftir að sjúkraflugvél rann út af flugbrautarenda sem varð til þess að flugvöllurinn lokaðist. Vél Icelandair á leið frá Seattle á sama tíma var sett í biðflug vegna atviksins en flugmenn vélarinnar lentu henni á lokaðri flugbraut án heimildar. RÚV greindi fyrst frá. Þetta kemur fram í tveimur stöðuskýrslum nefndarinnar vegna atvikanna sem áttu sér stað þann 28. október á síðasta ári. Þar segir að snemma morguns þann dag hafi sjúkraflugvél lent á Keflavíkurflugvelli. Að lokinni lendingu ók flugmaður flugvélarinnar henni út að enda flugbrautarinnar, þar sem að flugumferðarstjóri hafði beðið hann að rýma flugbrautina á akvegi N við norðurenda flugbrautarinnar. Þegar flugvélin nálgaðist enda flugbrautarinnar, náði flugmaður hennar ekki að hægja nægilega á flugvélinni vegna hálku á flugbrautarendanum og rann flugvélin út af flugbrautarendanum og inn á öryggissvæði utan flugbrautarinnar. Stöðvaðist flugvélin að lokum við enda öryggissvæðisins. Á meðan unnið var að því að fjarlægja flugvélina, var flugbraut 01/19 á Keflavíkurflugvelli lokuð. Við það lokaðist flugvöllurinn þar sem að flugbrautum 10/28 hafði ekki verið haldið opnum þessa nótt. Rannsóknin nefndarinnar beindist að hálkuvörnum á Keflavíkurflugvelli. Lýsti yfir neyðarástandi Á sama tíma umræddan morgun var flugvél Icelandair á leið frá Seattle að nálgast Keflavíkurflugvöll. Eftir að flugvöllurinn lokaðist vegna sjúkraflugvélarinnar var Icelandair-vélin sett í biðflug nálægt Keflavíkurflugvelli. Á meðan á biðfluginu stóð lýsti flugstjóri flugvélar Icelandair yfir neyðarástandi og sagðist verða að lenda á flugbraut 01 á Keflavíkurflugvelli vegna lágrar eldsneytisstöðu. Skömmu síðar lenti flugvél TF-ISF, án heimildar, á lokaðri flugbraut 01 á Keflavíkurflugvelli. Rannsókn nefndarinnar á þessu atviki snýr meðal annars meðal annars að eldsneytismálum flugrekandans, undirbúningi flugsins, eldsneyti flugsins, veðri, þjónustustigi Keflavíkurflugvallar, hálkuvarna á Keflavíkurflugvelli, viðbragðsgetu við opnun varaflugvalla, viðbragðsgetu við hálkuvarnir varaflugvalla, sem og kerfislægra misbresta.
Icelandair Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Samgönguslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Erlent Fleiri fréttir Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Sjá meira