Seldu fimmtíu þúsund miða á augabragði á El Clasico kvenna í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2022 16:00 Barcelona vann Meistaradeildina í fyrsta sinn í fyrra og Alexia Putellas fékk Gulhnöttinn sem besti leikmaður Evrópu. Getty/Thiago Prudênci Spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid hafa byggt upp kvennafótboltann hjá sér undanfarin ár og eru nú bæði að gera flotta hluti í Meistaradeild kvenna. Svo fór á endanum að þau drógust saman í átta liða úrslitum keppninnar í ár.
Kvennalið Barcelona fær mjög sjaldan að spila heimaleiki sína á Nývangi þar sem karlarnir spila alla sína heimaleiki. Forráðamenn félagsins fundu aftur á móti að það væri mikill áhugi á heimaleik liðsins á móti Real Madrid í Meistaradeildinni og færðu hann yfir á Nývang. Stelpurnar spila vanalega á Johan Cruyff leikvanginum sem er sex þúsund manna völlur. Það kom fljótt í ljós að þetta var frábær ákvörðun. View this post on Instagram A post shared by Just Women s Sports (@justwomenssports) Það er óhætt að segja að sala miða hafi gengið vel. 35 þúsund miðar seldust á fyrsta sólarhringnum þegar félagsmenn höfðu forkaupsrétt og sú tala fór upp í fimmtíu þúsund á fyrsta klukkutímanum eftir að opnað var fyrir almenna sölu. Leikurinn fer ekki fram fyrr en 30. mars næstkomandi og það er því nægur tími til að selja miklu fleiri miða. Ódýrustu miðarnir kosta níu evrur eða rúmlega þrettán hundruð íslenskar krónur. Nývangur tekur rúmlega 99 þúsund áhorfendur og það er því nóg af miðum eftir enn. Þetta er aðeins í annað skiptið frá því að kvennalið Barcelona var atvinnumannalið sem það fær að spila á Nývangi. Ólíkt í fyrra skipti, deildarleik á móti Espanyol, þá verða áhorfendur á þessum leik. Leikurinn á móti Espanyol var spilaður fyrir luktum dyrum vegna Covid-19. Barcelona vann Meistaradeildina á síðustu leiktíð og vann alla sex leiki sína í riðlakeppninni í vetur með markatölunni 24-1. Real Madrid vann fjóra af sex leikjum sínum en átta af tólf mörkum liðsins komu í tveimur leikjum á móti Breiðabliki.
Spænski boltinn Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira