Þórsarar í úrslitaeinvígið

Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 13 mörk fyrir Þór í kvöld.
Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 13 mörk fyrir Þór í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Þór frá Akureyri tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum umspils um laust sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik með því að leggja Hörð að velli, 24:22, í oddaleik undanúrslita umspilsins á Ísafirði í kvöld.

Þór vann einvígið samanlagt 2:1 og mætir Fjölni í úrslitaeinvíginu.

Í kvöld var ljóst að mikið var undir enda var allt í járnum allan leikinn.

Staðan í hálfleik var 12:10, Herði í vil.

Í síðari hálfleik var áfram allt í járnum.

Þór sterkari í lokin

Þór var ekkert á því að leggja árar í bát og náði í tvígang að komast einu marki yfir, 16:15 og 17:16.

Hörður náði aftur vopnum sínum og naumri forystu en alltaf voru Þórsarar skammt undan.

Undir lokin voru það gestirnir frá Akureyri sem reyndust sterkari, náðu tveggja marka forystu í stöðunni 22:20 þegar rúmar fimm mínútur lifðu leiks og unnu að lokum dýrmætan tveggja marka sigur.

Brynjar skoraði 13 mörk

Brynjar Hólm Grétarsson fór á kostum í liði Þórs og skoraði 13 mörk.

Markverðir liðanna létu þá báðir vel að sér kveða þar sem Kristján Páll Steinsson varði 15 skot í marki Þórs.

Jonas Maier í marki Harðar varði 17 skot. Markahæstur Harðarmanna var Jhonatan Santos með sjö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert