Með ónotatilfinningu fyrir aðgerðum sem gætu sett Þjóðhátíð úr skorðum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. júlí 2021 12:00 Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri ÍBV og formaður Þjóðhátíðarnefndar. Vísir/Jóhann K. Formaður Þjóðhátíðarnefndar segist hafa ónotatilfinningu fyrir því að gripið verði til aðgerða til að bregðast við fjölgun kórónuveirusmita í samfélaginu, sem gætu haft áhrif á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Öllum tilmælum yfirvalda verði þó fylgt.
Hörður Orri Grettisson, formaður Þjóðhátíðarnefndar ÍBV, segist ekki vera í stöðu til að geta sér til um hvort gripið verði til aðgerða, og þá hvers eðlis þær verða. Fréttastofa ræddi við hann í dag áður en tölur um smit gærdagsins voru gerðar ljósar. Nefndin hafi áhyggjur af því að aðgerðir muni setja áform um hátíðina úr skorðum. „Við höfum ákveðna ónotatilfinningu fyrir því að það verði gripið til aðgerða,“ segir Hörður í samtali við fréttastofu. Í gær greindust 56 manns með kórónuveiruna hér á landi, meirihlutinn bólusettur. Í samtali við fréttastofu sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að ekki væri á dagskrá hjá sér í dag að skila minnisblaði um aðgerðir til heilbrigðisráðherra. Það væri þó alltaf í skoðun og grípa þyrfti til einhvers konar aðgerða. Innan við tvær vikur eru í Þjóðhátíð og segir Hörður að best væri að fá botn í málið sem fyrst. „Undirbúningur er allur á fullu og skipulag hátíðarinnar er á lokametrunum. Því fyrr sem það koma einhver tilmæli, því betra.“ Í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum er alla jafna margt um mannin um Verslunarmannahelgina.Vísir/Sigurjón Fari svo að Þjóðhátíð fari ekki fram í ár munu margir tilvonandi gestir hátíðarinnar sitja uppi með ónothæfa miða. Hörður segir að leyst verði úr því ef að því kemur. „Það er bara eitthvað sem við höfum ekki skoðað. Við vorum í svipuðu ferli í fyrra þegar búið var að selja töluvert magn af miðum. Þá gat fólk annað hvort fengið endurgreitt eða flutt miðann yfir á hátíðina í ár. Ég reikna með að það yrði eitthvað sams konar fyrirkomulag,“ segir Hörður. Hann segir að hvað sem verður muni skipuleggjendur fylgja tilmælum Almannavarna í einu og öllu. Fari hátíðin fram verði persónulegar sóttvarnir ítrekaðar og allt gert svo hátíðin geti farið sómasamlega fram. Að öllu óbreyttu er það stefnan. „Við stefnum að því að halda Þjóðhátíð og í dag eru engar samkomutakmarkanir í landinu. Á meðan svo er, þá fer Þjóðhátíð fram.“
Þjóðhátíð í Eyjum Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vestmannaeyjar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira