Dúi semur við Álftanes

Kjartan Atli Kjartansson og Dúi Þór Jónsson halda á treyju …
Kjartan Atli Kjartansson og Dúi Þór Jónsson halda á treyju Álftnesinga. Álftanes Körfubolti

Það er brjálað að gera hjá Körfuknattleiksdeild Álftaness þessa stundina. Félagið hefur sótt sinn þriðja leikmann í sumar, leikstjórnandann Dúa Þór Jónsson frá Þór Akureyri. 

Dúi lék með Þór í úrvalsdeildinni í fyrra og átti glimrandi tímabil. Hann var í öðru sæti yfir þá leikmenn sem gáfu flestar stoðsendingar í deildinni, en hann gaf 7,6 stoðsendingar að meðaltali í leik. Ásamt því skoraði Dúi 15 stig að meðaltali í leik og var valinn í 26 manna landsliðshóp sem æfði í síðustu viku.

Dúi, sem er uppalinn Stjörnumaður, lék áður með Álftaness á venslasamningi tímabilið 2019 - 2020. Þar skoraði Dúi tæp 18 stig, tók rúmlega sex fráköst og var með rúmar sex stoðsendingar í leik.

Dúi er spenntur fyrir komandi verkefni með Álftanesi:
„Það er gott að spila á nesinu og við erum með best mannaða hópinn í deildinni að mínu mati. Ég er virkilega spenntur að spila stórt hlutverk í liði sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum.“

Í yngri flokkum Stjörnunnar var Dúi um árabil þjálfaður af Kjartani Atla Kjartanssyni sem nú stýrir liði Álftaness. „Við erum virkilega hamingjusöm á Álftanesi að hafa fengið Dúa til liðs við okkur. Ég hef alltaf fylgst vel með ferli hans og veit að Dúi mun koma inn í deildina af miklum krafti. Mér finnst það virkilega skemmtilegt að verða meistaraflokksþjálfari leikmanns sem ég þjálfaði þegar hann var 10 ára. Ég hef þekkt nokkra í leikmannahópnum okkar ansi lengi og það gefur starfinu aukið vægi. Í ofanálag er leikmannahópurinn okkar virkilega samstilltur, þetta er eins og góður vinahópur, þannig að væntumþykjan verður alls ráðandi í vetur,“ segir Kjartan.

Dúi er þriðji leikmaðurinn sem bætist við leikmannahóp Álftaness fyrir komandi átök í fyrstu deildinni. Auk Dúa eru þeir Pálmi Geir Jónsson (sem kom frá Val) og Snjólfur Marel Stefánsson (sem kom frá Njarðvík) gengnir í Álftanes. „Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar er algjörlega frábær og er erfitt að koma því í orð hversu gott það er fyrir þjálfara að hafa svona öflugt teymi með sér í leikmannamálum,“ bætir Kjartan Atli við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert