Hamfarir Skaftárelda rifjaðar upp í þætti um Meðalland Kristján Már Unnarsson skrifar 1. mars 2021 12:49 Lilja Magnúsdóttir við bæinn að Hnausum í Meðallandi. Fyrir aftan má sjá hvar hraunið stöðvaðist árið 1783. Einar Árnason Nærri 240 árum eftir Skaftárelda tala Skaftfellingar enn um „fyrir eld“ og „eftir eld“, svo víðtæk áhrif hafði eldgosið hrikalega úr Lakagígum á Eldsveitirnar, svæðið milli Mýrdalssands og Skeiðarársands.
Hamfarir Skaftárelda á árunum 1783 til 1784 eru rifjaðar upp í þættinum Um land allt á Stöð 2, sem að þessu sinni er um Meðalland. Það er sú sveit sem varð fyrir einna mestum búsifjum þegar hraunið flæddi ofan af hálendinu, um farvegi Skaftár og Hverfisfljóts, og yfir láglendissveitir. „Það eyðir tuttugu bæjum í allt,“ segir Lilja Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Skaftárhrepps, sem er meðal viðmælenda í þættinum. Margir bæjanna sem eyddust voru í Meðallandi, þeirra á meðal kirkjujörð sveitarinnar, Hólmasel, og bæir þar í kring. Kirkjan hvarf undir hraunið aðeins tveimur vikum eftir að gosið hófst. Einnig hröktust margir bæir til og voru síðar endurreistir á nýjum stað. Séð yfir bæjarhúsin á Hnausum. Eldhraun og Eldvatn í baksýn. Kirkjujörðin Hólmasel er núna undir hrauninu nokkra kílómetra norðvestan Hnausa.Einar Árnason Helsta heimildin er eldklerkurinn Jón Steingrímsson sem upplifði sjálfur atburðina og skráði í riti sem hann nefndi Fullkomið skrif um Síðueld en oftast kallað Eldritið. „Jón Steingrímsson lýsir líka landinu hér fyrir eld. Þá lýsir hann þessu svæði sem valllendissvæði, grasi vöxnu með lækjum og hvömmum, - bara ofsalega fallegu svæði. Svo fer það bara undir þetta hrikalega hraun,“ segir Lilja. Þátturinn um Meðalland fjallar þó að mestu um ánægjulega þróun sveitarinnar á síðustu árum. Eftir ládeyðu hefur ungt fólk tekið þar við bújörðum og hafið uppbyggingu. Þá er eitt stærsta nautgripabú landsins að verða til á Sandhóli samhliða nýsköpun í ræktun og vinnslu nytjajurta. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins sem er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 í kvöld:
Um land allt Skaftárhreppur Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12 Hitinn frá hrauninu skýrir hraða myndun byggðar á Brunasandi Volgt vatn undan heitu hrauni Skaftárelda í áratugi eftir að gosinu lauk flýtti fyrir landnámi gróðurs á svæði sem áður var svartur jökulsandur. Þetta segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur að hljóti að vera skýringin á því hversvegna ný sveit myndaðist ótrúlega fljótt á Brunasandi. 30. nóvember 2020 22:33 Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10 Safn um sögu skipsstranda verði í gömlum sveitabæ í Meðallandi Skaftfellingar vilja taka fornfræg bæjarhús að Hnausum í Skaftárhreppi undir safn um sögu skipsstranda. Strandlengjan úti fyrir Meðallandi var illræmd fyrr á tímum sökum tíðra skipsskaða. 28. febrúar 2021 21:08 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Fleiri fréttir „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Sjá meira
Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12
Hitinn frá hrauninu skýrir hraða myndun byggðar á Brunasandi Volgt vatn undan heitu hrauni Skaftárelda í áratugi eftir að gosinu lauk flýtti fyrir landnámi gróðurs á svæði sem áður var svartur jökulsandur. Þetta segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur að hljóti að vera skýringin á því hversvegna ný sveit myndaðist ótrúlega fljótt á Brunasandi. 30. nóvember 2020 22:33
Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10
Safn um sögu skipsstranda verði í gömlum sveitabæ í Meðallandi Skaftfellingar vilja taka fornfræg bæjarhús að Hnausum í Skaftárhreppi undir safn um sögu skipsstranda. Strandlengjan úti fyrir Meðallandi var illræmd fyrr á tímum sökum tíðra skipsskaða. 28. febrúar 2021 21:08