Garðar lenti í einelti í Búlgaríu: Sitja í klefanum, benda á mann og hlæja Sindri Sverrisson skrifar 22. nóvember 2021 09:01 Garðar Gunnlaugsson í leik með Val árið 2019. Lengstan hluta ferilsins lék markahrókurinn þó með ÍA þar sem hann er uppalinn. Garðar hefur síðustu tvö sumur leikið með Kára í 2. deild. vísir/vilhelm Garðar Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, greindi frá því í viðtali um helgina að á árum sínum hjá CSKA Sofiu í Búlgaríu hefði hann lent í einelti af hálfu liðsfélaga.
Garðar opnaði sig um þetta í þættinum Kynstrin öll, á RÚV, þar sem hann ræddi við Snærós Sindradóttur meðal annars um „klefakúltúrinn“ í fótboltanum, sem talsvert hefur verið til umræðu síðustu mánuði, í tengslum við umræðu um kynbundið ofbeldi. Garðar segir að þó að karlaklefarnir séu frábærir á margan hátt, og hafi að sínu viti eflaust bjargað mörgum mannslífum sem öruggur staður fyrir karlmenn til að tala saman, þá skapist þar einnig stundum skaðleg umræða í garð hins kynsins. „Sérstaklega í Austur-Evrópu þá er þetta miklu verra en nokkru sinni hérna heima,“ sagði Garðar. Hann var á mála hjá CSKA Sofiu og bjó ásamt þáverandi konu sinni, Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, í höfuðborg Búlgaríu frá ágúst 2008 og fram í ársbyrjun 2010. Segir búlgarska karlmenn rosalega gamaldags í hugsun „Ég lenti sjálfur í einelti þar, í klefanum, og hef svo sem ekki opnað mig neitt um það út á við. Búlgarar, sérstaklega karlmenn, eru með rosalega gamaldags hugsun hvað varðar kvenmenn og rasisma. Minnihlutahópar eiga þar mjög erfitt, sérstaklega ef þú ert útlendingur og þeir vita að þú ert að þéna meira en þeir eru að gera. Þá ertu strax tekinn fyrir. Þú talar ekki tungumálið og þeir sitja bara í klefanum, benda á þig, hlæja að þér og segja eitthvað sín á milli. Sem er auðvitað fáránlegt. Fullorðnir karlmenn,“ sagði Garðar. Skemmtilegt spjall fyrir þá sem hafa áhuga.. opnaði mig um hlut sem ég held ég hafi aldrei rætt um áður.. https://t.co/4KPctbYWe3— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) November 21, 2021 Garðar lék með uppeldisfélagi sínu ÍA og Val hér á landi en einnig sem atvinnumaður í Skotlandi, Svíþjóð, Austurríki, Þýskalandi og Búlgaríu. Síðustu tvö sumur hefur hann leikið með Kára á Akranesi í 2. deild. „Opnaði minn hug fyrir því hvernig er að lenda í þessu sjálfur“ Snærós spurði Garðar hvort að eineltið hefði breytt hans sýn á samskipti í íþróttaliðum: „Þetta var rosalega skrýtin upplifun. Ég hef alltaf, í öllum þeim liðum og löndum sem ég hef verið í, komist strax inn í fínan félagsskap. Í Búlgaríu reyndar urðum ég og fyrirliðinn, og varafyrirliðinn, bestu vinir en þeir voru eldri karlar og tóku ekkert þátt í þessari umræðu hjá hinum. Þeir voru heldur ekkert að stoppa þá, einmitt kannski af ótta við að verða útskúfað. Þetta opnaði minn hug fyrir því hvernig er að lenda í þessu sjálfur. Ég hafði aldrei lent í þessu sjálfur, hvorki sem krakki né fullorðinn, að vera lagður í einelti. Maður fór þá líka í að skoða sína hegðun. Maður var vissulega krakki en kannski kom maður illa fram við aðra krakka og svo framvegis. Maður á stanslaust að vera að skoða sjálfan sig,“ sagði Garðar.
Fótbolti Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs Enski boltinn Í beinni: Valur - Afturelding | Valsmenn mættir eftir Evrópuævintýrið Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Leik lokið: Valur - Víkingur 7-2 | Nadía skoraði þegar Valskonur völtuðu yfir Víkinga Í beinni: Fylkir - Keflavík | Nýliðarnir enn ósigraðir Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Sjá meira