Fótbolti

Mynda­veisla: Allt sauð upp úr þegar Blikar jöfnuðu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mönnum var heitt í hamsi á Kópavogsvelli eins og sést á myndinni. Logi Tómasson, leikmaður Víkinga, og Viktor Örn Margeirsson Bliki takast duglega á en Gunnlaugur Jónsson, sérfræðingur Stöð 2 Sport, reynir að skakka leikinn.
Mönnum var heitt í hamsi á Kópavogsvelli eins og sést á myndinni. Logi Tómasson, leikmaður Víkinga, og Viktor Örn Margeirsson Bliki takast duglega á en Gunnlaugur Jónsson, sérfræðingur Stöð 2 Sport, reynir að skakka leikinn. Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik og Víkingur gerðu dramatískt jafntefli á Kópavogsvelli í Bestu deild karla í gær. Það sauð upp úr á hliðarlínunni eftir að lokaflautan gall.

Leikur Breiðabliks og Víkinga í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi bauð upp á alvöru dramatík. Blikar skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og náðu að knúa fram jafntefli og eftir að lokaflautið gall varð allt vitlaust á hliðarlínunni.

Þjálfarar liðanna, þeir Arnar Gunnlaugsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson, mættu í viðtöl að leik loknum þar sem þeir kepptust um hvort liðið hefði í raun verið betra í leiknum og voru stór orð látin falla um andstæðingana sem og dómara leiksins en Víkingar voru mjög ósáttir við hversu miklu bætt var við leikinn.

Hulda Margrét ljósmyndari Vísis var á Kópavogsvelli í gær og náði frábærum myndum af lokasekúndum leiksins sem og látunum eftir leik.

Pablo Punyed fær flugverð.Vísir/Hulda Margrét
Pablo Punyed og Damir Muminovic berjast um boltann.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Jöfnunarmark Blika kom á lokaandartökum leiksins.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Blikar fagna.Vísir/Hulda Margrét
Óskar Hrafn og Halldór Árnason á hliðarlínunni.Vísir/Hulda Margrét
Erlendur Eiríksson fjórði dómari stígur á milli þeirra Óskars Hrafns og Sölva Ottesen.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Blika ósáttur.Vísir/Hulda Margrét
Damir Muminovic varnarmaður Blika horfir í átt að þjálfarateymi Víkinga.Vísir/Hulda Margrét
Logi Tómasson og Viktor Örn Margeirsson létu til sín taka eftir leik.Vísir/Hulda Margrét
Það þurfti að skilja menn að eftir að lokaflautið gall.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Gunnlaugur Jónsson sérfræðingur Stúkunnar reynir að róa menn niður.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét


Tengdar fréttir

„Litlir hundar sem gelta hátt“

„Maður er aðeins að koma niður eftir skemmtilegar lokamínútur,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í viðtali eftir leik Breiðabliks og Víkings í Bestu-deild karla í kvöld.

„Haga sér eins og fávitar allan leikinn“

„Við vorum með yfirburði allan leikinn en gáfum þeim tvö mörk í fyrri hálfleik. Á endanum gerum við jafntefli en hefðum átt að vinna þennan leik stærra,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-2 jafntefli í stórleik Bestu deildar karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×