Óboðlegt að ríkari kröfur séu gerðar um klæðaburð í Costco en á Alþingi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. mars 2021 19:01 Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins. vísir/Vilhelm Reglur um klæðaburð á Alþingi eru til skoðunar í forsætisnefnd Alþingis. Þingmaður Miðflokksins segir óboðlegt að meiri kröfur séu gerðar um snyrtilegan klæðnað í Costco en á þjóðþingi Íslendinga.
Á fundi forsætisnefndar Alþingis í morgun var rætt um samantekt sem unnin var fyrir nefndina um klæðaburð í norrænum þjóðþingum. Þingmaður Miðflokksins, sem óskaði eftir samantektinni, telur endurskoðun tímabæra. „Eins og er núna þá er þingið með lélegri klæðareglur en Costco. Til þess að fara inn í Costco þarftu að vera í jakka og í skóm. En íslenska þingið er ekki að uppfylla þetta,“ segir Þorsteinn Sæmundsson. Klæðaburður í þingsal hefur lengi verið deilumál. Þrátt fyrir að bindisskylda sé ekki lengur við lýði gerði þingmaður Miðflokksins athugasemd við að þingmaður Pírata væri bindislaus í stól forseta Alþingis á dögunum og í fyrra var tekist á um sambærilegt mál. Þá vakti það athygli árið 2013 þegar Elín Hirst, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var send heim að skipta um föt þegar hún mætti í gallabuxum á þingfund. Hér á landi eru í gildi nokkuð óformlegar reglur og kveðið á um klæðaburð í handbók sem nýir þingmenn fá í hendur. Samkvæmt samtantektinni sem var unnin fyrir forsætisnefnd er þessu mismunandi háttað á Norðurlöndunum. Engar reglur eru um klæðaburð danskra þingmanna en ríkjandi viðhorf er að klæðnaður þeirra skuli vera sómasamlegur líkt og almennt viðgengst á öðrum vinnustöðum. Í Noregi eru hins vegar í gildi nokkuð ítarlegar leiðbeiningar. Í þeim kemur fram að þingmenn mega ekki vera í gallabuxum og hvorki bera barmmerki né trúðsnef. Þá skulu skór kvenna ekki vera of háir og förðun og skartgripum skal stilla í hóf. Þorsteinn telur mikilvægt að skerpa á reglunum hér og jafnvel setja viðurlög við brotum; þannig að heimilt gæti verið að víkja ósnyrtilegum þingmönnum úr þingsal. „Í mínum huga snýst þetta um virðingu fyrir vinnustaðnum, virðingu fyrir stofnuninni og virðingu fyrir þeim sem við erum að vinna fyrir.“
Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Sjá meira