Sá besti á móti bestu vörninni og einvígi ungu og hlaupaglöðu leikstjórnendanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2021 12:30 Aaron Rodgers hefur átt frábært tímabil með Green Bay Packers og liðið er til alls líklegt í úrslitakeppni NFL-deildarinnar í ár. Getty/Quinn Harris Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NFL-deildarinnar í kvöld og nú koma bestu liðin inn í úrslitakeppnina eftir að hafa setið hjá um síðustu helgi. Úrslitakeppni NFL-deildarinnar hófst um síðustu helgi en nú er komið af helginni sem er oft kölluð sú besta í boltanum. Þá fara fram undanúrslitin í bæði Þjóðardeildinni og Ameríkudeildinni. Fyrri leikur dagsins er leikur Green Bay Packers og Los Angeles Rams en Packers liðið var með besta árangurinn í Þjóðardeildinni og sat hjá um síðustu helgi. Á sama tíma vann Rams-liðið glæsilegan sigur í Seatttle en liðsmenn Los Angeles Rams hafa verið frekar óútreiknanlegir síðustu vikur. Seinni leikur kvöldsins er uppgjör á milli tveggja af framtíðarstjörnum deildarinnar en stuðningsmenn bæði Baltimore Ravens og Buffalo Bills hafa líka beðið lengi eftir því að lið þeirra gera einhverja hluti í úrslitakeppninni. Aaron Rodgers targeting end zone in last 2 seasons 40 TDs 0 INTs pic.twitter.com/ev7mqIDIB9— PFF Fantasy Football (@PFF_Fantasy) January 15, 2021 Green Bay Packers vann sex síðustu leiki sína fyrir úrslitakeppni og þrettán af sextán leikjum deildarkeppninnar. Leikstjórnandinn Aaron Rodgers og útherjinn Davante Adams hafa spilað frábærlega í allan vetur og Rodgers er mjög líklegur til að verða kosinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins. It's a scary sight when @AaronDonald97 is fired up! : #LARvsGB -- Saturday 4:35pm ET on FOX : NFL app // Yahoo Sports app pic.twitter.com/NRwtNnbZFE— NFL (@NFL) January 14, 2021 Það hefur verið mun meira vesen á liði Los Angeles Rams og þá ekki síst leikstjórnendastöðunni. Rams-vörnin er aftur á móti ein sú allra besta í deildinni og á henni fór liðið í gegnum Seattle Seahawks um síðustu helgi og þessi vörn gæti skapað vandræði fyrir sókn Packers mann í kvöld. Baltimore Ravens og Buffalo Bills fögnuðu bæði sannfærandi sigrum um síðustu helgu. Baltimore Ravens hefur verið með frábært lið síðustu ár en tókst loksins að vinna leik í úrslitakeppni og sigur Buffalo Bills var fyrsti sigur liðsins í úrslitakeppni í 25 ár. The Road Less TraveledVolume 2, Chapter 2 pic.twitter.com/jn7zUA3bTW— Baltimore Ravens (@Ravens) January 15, 2021 Leikstjórnendur Baltimore Ravens og Buffalo Bills eiga það sameiginlegt að vera ungir leikmenn sem hafa þegar komið sér í hóp þeirra bestu í deildinni. Þeir eru líka mjög duglegir við að hlaupa sjálfir með boltann upp völlinn; stórir, hraustir og hugrakkir strákar. Lamar Jackson hjá Baltimore Ravens var valinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar í fyrra en þá klúðraði Ravens liðið fyrsta leik í úrslitakeppninni. Nú eru menn staðráðnir að bæta fyrir það þrátt fyrir ekki alveg eins glæsilega deildarkeppni. Liðið kom samt inn í úrslitakeppninni á góðri siglingu. An AFC showdown between @Lj_era8 and @JoshAllenQB! : #BALvsBUF -- Saturday 8:15pm ET on NBC : NFL app // Yahoo Sports app pic.twitter.com/uGIfLvtyqN— NFL (@NFL) January 14, 2021 Josh Allen hjá Buffalo Bills hefur aftur á móti átt frábært tímabil og er einn af þeim sem koma til greina sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Bills liðið vann 27-24 sigur á Indianapolis Colts um síðustu helgi sem var fyrsti sigur liðsins í úrslitakeppninni síðan 1995. Allen hefur bætt sendingarnar mikið frá því í fyrra og er orðin einn sá besti í deildinni. Útsending frá leik Green Bay Packers og Los Angeles Rams hefst klukkan 21.25 á Stöð 2 Sport 2 en klukkan 01.00 hefst síðan útsending frá leik Buffalo Bills og Baltimore Ravens á sömu stöð. NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði. NFL Mest lesið Umfjöllun: Úkraína - Ísland 2-1 | EM-draumurinn úti Fótbolti Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Haaland baðst afsökunar eftir leik Fótbolti Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Verður ekki sama hrútafýluauglýsing og í fyrra“ Íslenski boltinn „Ég er 54 kíló og er ekki mikið að rota fólk“ Sport Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Íslenski boltinn „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin Bjarki Már og félagar í góðri stöðu „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ PSG mætir Lyon í undanúrslitum Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Djokovic segir þjálfaranum upp Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum Sjá meira
Úrslitakeppni NFL-deildarinnar hófst um síðustu helgi en nú er komið af helginni sem er oft kölluð sú besta í boltanum. Þá fara fram undanúrslitin í bæði Þjóðardeildinni og Ameríkudeildinni. Fyrri leikur dagsins er leikur Green Bay Packers og Los Angeles Rams en Packers liðið var með besta árangurinn í Þjóðardeildinni og sat hjá um síðustu helgi. Á sama tíma vann Rams-liðið glæsilegan sigur í Seatttle en liðsmenn Los Angeles Rams hafa verið frekar óútreiknanlegir síðustu vikur. Seinni leikur kvöldsins er uppgjör á milli tveggja af framtíðarstjörnum deildarinnar en stuðningsmenn bæði Baltimore Ravens og Buffalo Bills hafa líka beðið lengi eftir því að lið þeirra gera einhverja hluti í úrslitakeppninni. Aaron Rodgers targeting end zone in last 2 seasons 40 TDs 0 INTs pic.twitter.com/ev7mqIDIB9— PFF Fantasy Football (@PFF_Fantasy) January 15, 2021 Green Bay Packers vann sex síðustu leiki sína fyrir úrslitakeppni og þrettán af sextán leikjum deildarkeppninnar. Leikstjórnandinn Aaron Rodgers og útherjinn Davante Adams hafa spilað frábærlega í allan vetur og Rodgers er mjög líklegur til að verða kosinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins. It's a scary sight when @AaronDonald97 is fired up! : #LARvsGB -- Saturday 4:35pm ET on FOX : NFL app // Yahoo Sports app pic.twitter.com/NRwtNnbZFE— NFL (@NFL) January 14, 2021 Það hefur verið mun meira vesen á liði Los Angeles Rams og þá ekki síst leikstjórnendastöðunni. Rams-vörnin er aftur á móti ein sú allra besta í deildinni og á henni fór liðið í gegnum Seattle Seahawks um síðustu helgi og þessi vörn gæti skapað vandræði fyrir sókn Packers mann í kvöld. Baltimore Ravens og Buffalo Bills fögnuðu bæði sannfærandi sigrum um síðustu helgu. Baltimore Ravens hefur verið með frábært lið síðustu ár en tókst loksins að vinna leik í úrslitakeppni og sigur Buffalo Bills var fyrsti sigur liðsins í úrslitakeppni í 25 ár. The Road Less TraveledVolume 2, Chapter 2 pic.twitter.com/jn7zUA3bTW— Baltimore Ravens (@Ravens) January 15, 2021 Leikstjórnendur Baltimore Ravens og Buffalo Bills eiga það sameiginlegt að vera ungir leikmenn sem hafa þegar komið sér í hóp þeirra bestu í deildinni. Þeir eru líka mjög duglegir við að hlaupa sjálfir með boltann upp völlinn; stórir, hraustir og hugrakkir strákar. Lamar Jackson hjá Baltimore Ravens var valinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar í fyrra en þá klúðraði Ravens liðið fyrsta leik í úrslitakeppninni. Nú eru menn staðráðnir að bæta fyrir það þrátt fyrir ekki alveg eins glæsilega deildarkeppni. Liðið kom samt inn í úrslitakeppninni á góðri siglingu. An AFC showdown between @Lj_era8 and @JoshAllenQB! : #BALvsBUF -- Saturday 8:15pm ET on NBC : NFL app // Yahoo Sports app pic.twitter.com/uGIfLvtyqN— NFL (@NFL) January 14, 2021 Josh Allen hjá Buffalo Bills hefur aftur á móti átt frábært tímabil og er einn af þeim sem koma til greina sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Bills liðið vann 27-24 sigur á Indianapolis Colts um síðustu helgi sem var fyrsti sigur liðsins í úrslitakeppninni síðan 1995. Allen hefur bætt sendingarnar mikið frá því í fyrra og er orðin einn sá besti í deildinni. Útsending frá leik Green Bay Packers og Los Angeles Rams hefst klukkan 21.25 á Stöð 2 Sport 2 en klukkan 01.00 hefst síðan útsending frá leik Buffalo Bills og Baltimore Ravens á sömu stöð. NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.
NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.
NFL Mest lesið Umfjöllun: Úkraína - Ísland 2-1 | EM-draumurinn úti Fótbolti Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Haaland baðst afsökunar eftir leik Fótbolti Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Verður ekki sama hrútafýluauglýsing og í fyrra“ Íslenski boltinn „Ég er 54 kíló og er ekki mikið að rota fólk“ Sport Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Íslenski boltinn „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin Bjarki Már og félagar í góðri stöðu „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ PSG mætir Lyon í undanúrslitum Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Djokovic segir þjálfaranum upp Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum Sjá meira
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Íslenski boltinn
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Íslenski boltinn
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti