Töluvert slasaður eftir harðan árekstur

Vesturlandsvegur.
Vesturlandsvegur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður var fluttur töluvert slasaður á slysadeild eftir harðan tveggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi við Kjalarnes fyrr í dag. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er nú unnið að því að hreinsa slyssvæðið. 

„Þetta var harður árekstur, einn í hvorum bíl. Annar þeirra var fluttur töluvert slasaður á slysadeild,“ segir varðstjóri. 

Fram kom í tilkynningu frá lögreglu fyrr í dag að veginum hafi verið lokað við Esjuskála og Klébergsskóla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert