Ræddu skot Óskars Hrafns á Ágúst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2020 11:31 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, ásamt aðstoðarmanni sínum, Halldóri Árnasyni. vísir/hag
Í Pepsi Max stúkunni í gær ræddu þeir Hjörvar Hafliðason og Sigurvin Ólafsson um ummæli Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks, í viðtali við mbl.is, eftir tapið fyrir KR, 0-2, á mánudaginn. Þar virtist Óskar skjóta á forvera sinn í starfi þjálfara Breiðabliks, Ágúst Gylfason. „Við höfum tekið miklum framförum á ákveðnum sviðum en liðið hefur hafnað í öðru sæti deildarinnar undanfarin tvö ár og krafan er og verður alltaf að gera betur. Það er hægt að velta því fyrir sér hversu mikil innistæða var fyrir þeim árangri en svona er heimurinn sem við lifum í. Við erum á ákveðinni vegferð en eins og þetta kemur mér fyrir sjónir tekur þetta of langan tíma og við þurfum að reyna hraða þessu ferli,“ sagði Óskar. Hjörvar hnaut aðeins um það þegar Óskar efaðist um innistæðuna fyrir árangri Breiðabliks tímabilin 2018 og 2019. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er ósammála Óskari frá því tímabilið hófst. Þarna segist hann ekki vera viss um innistæðuna fyrir því sem Ágúst gerði. Ágúst tók við liði Breiðabliks sem lenti í 6. sæti 2016 og 2017 og skilaði þeim í 2. sæti tvö ár í röð og í bikarúrslit, skoraði flest mörk í fyrra og seldi fullt af leikmönnum,“ sagði Hjörvar í Pepsi Max stúkunni í gær. „Mér finnst þetta skrítið því ég hef heyrt Óskar vera jákvæðan í garð þess sem Ágúst skildi eftir sig. Þetta kom mér svolítið á óvart. Það má ekki gera lítið úr því að Ágúst sýndi mikinn stöðugleika með Breiðablik. Nú eru þeir að fara í nýjar áttir og prófa öðruvísi tegund af fótbolta. Það var vitað að þetta yrði einhvers staðar erfitt á leiðinni og akkúrat núna er þetta pínu erfitt.“ Strákarnir í Pepsi Max stúkunni báru svo saman árangur Breiðabliks gegn bestu liðum landsins í ár og í fyrra. Óhætt er að segja að samanburðurinn sé Blikaliðinu í fyrra í hag. „Það sem vekur mestan áhuga hjá mér er fyrirsögnin þar sem hann talar um að bomba hausnum endalaust við steininn. Úr því mætti lesa að menn ættu kannski að skipta um kúrs og hvort þetta sé vonlaust verkefni. Það gefur því undir fótinn,“ sagði Sigurvin. „Svo kemur það sem Hjörvar var að tala um áðan, sem er eins og pilla í garð fyrrverandi þjálfara og hans aðferð hafi skilað þeim einhverjum stigum en mér finnst hann vera að gefa í skyn að það hafi ekki verið nein framtíð í því.“ Breiðablik er í 5. sæti Pepsi Max-deildar karla með 23 stig. Næsti leikur liðsins er gegn Stjörnunni á Kópavogsvelli annað kvöld. Klippa: Pepsi Max stúkan - Umræða um ummæli Óskars Hrafns
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max stúkan Breiðablik Tengdar fréttir Sjáðu mörkin þegar Valur kjöldró Stjörnuna og öll hin úr Pepsi Max-deild karla í gær Átján mörk voru skoruð í fimm leikjum í Pepsi Max-deild karla í gær. Sex þeirra komu í Garðabænum þar sem topplið Vals rúllaði yfir Stjörnuna, 1-5. 22. september 2020 09:00 Óskar: Ólíkt okkur þá halda þeir skipulaginu sínu í 90 mínútur Þjálfari Breiðabliks tók sér góðar 15 sekúndur í að hugsa sig um áður en hann svaraði spurningu blaðamanns um hvað hefði farið úrskeiðis í kvöld. Hans menn töpuðu í þriðja skipti í sumar og virðast ekki hafa neitt í ríkjandi Íslandsmeistara. 21. september 2020 21:59 Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - KR 0-2 | Hreðjartak KR á Blikum KR hefur unnið Breiðablik örugglega í þrígang í sumar. 21. september 2020 22:18 Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna „Verður ekki sama hrútafýluauglýsing og í fyrra“ Rétt gíraður Eiður sé einn besti hafsent landsins „Erum bara á flottum stað miðað við árstíma“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 4-0 | Valskonur örugglega í úrslit Vestri steinlá í fyrsta leik Eiðs Arons „Var bara þrekvirki Óla Þórðar“ „Það breytti alveg planinu“ Baldur heimsækir Skagann í kvöld: „Var ekki í plönunum að koma heim“ Breiðablik gerði jafntefli við úrvalsdeildarlið frá Þýskalandi Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ „Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni „Það er kannski ekkert gáfulegt“ Draumur Davíðs Smára rætist en kostnaðurinn tugir milljóna Myndir af Gylfa á fyrstu æfingunni á Íslandi sem leikmaður Vals Eftirminnilegustu heimkomurnar í íslenska fótboltanum Drepur varg, smíðar og er fyrirliði í Bestu deildinni Andrea Rán spilar á Íslandi í sumar Óli Valur aftur í raðir Stjörnunnar HK sækir leikmann sem hefur áður leikið með liðinu Dreymir um hitalagnir og höll Sjá meira
Sjáðu mörkin þegar Valur kjöldró Stjörnuna og öll hin úr Pepsi Max-deild karla í gær Átján mörk voru skoruð í fimm leikjum í Pepsi Max-deild karla í gær. Sex þeirra komu í Garðabænum þar sem topplið Vals rúllaði yfir Stjörnuna, 1-5. 22. september 2020 09:00
Óskar: Ólíkt okkur þá halda þeir skipulaginu sínu í 90 mínútur Þjálfari Breiðabliks tók sér góðar 15 sekúndur í að hugsa sig um áður en hann svaraði spurningu blaðamanns um hvað hefði farið úrskeiðis í kvöld. Hans menn töpuðu í þriðja skipti í sumar og virðast ekki hafa neitt í ríkjandi Íslandsmeistara. 21. september 2020 21:59
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - KR 0-2 | Hreðjartak KR á Blikum KR hefur unnið Breiðablik örugglega í þrígang í sumar. 21. september 2020 22:18
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti