Napoli í kapphlaupið um Albert

Albert Guðmundsson er orðaður við mörg stórlið.
Albert Guðmundsson er orðaður við mörg stórlið. Ljósmynd/Genoa

Ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto greinir frá því að ítalska stórliðið Napoli sé að undirbúa tilboð í íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson. Juventus og nýkrýndir Ítalíumeistarar Inter hafa einnig áhuga.

Sóknarmaðurinn hefur skorað sextán mörk í ítölsku A deildinni fyrir Genoa á tímabilinu og mikill áhugi er á honum frá stórum félögum. Auk stóru liðanna á Ítalíu hafa Tottenham og Aston Villa einnig verið orðuð við Albert.

Albert er metinn á kringum 40 milljónir evra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert