Óskar eftir gögnum um ábyrgðarmenn námslána Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. mars 2023 20:01 Árið 1993 gekkst Hulda Guðmundsdóttir í ábyrgð fyrir námsláni sonar hennar svo hann gæti tekið lán til að komast í nám í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var krafa að lántakendur hefðu ábyrgðarmann á bak við sig en þeim reglum hefur nú verið breytt og er lántakandi í dag einn ábyrgðarmaður skuldar sinnar. Háskólaráðherra vill endurskoða málið. Vísir/Arnar Háskólaráðherra hefur óskað eftir gögnum um þá ábyrgðamenn sem skildir voru eftir þegar ábyrgðarmannakerfi á lánum var lagt af. Hún segir hrakfarir áttræðrar konu, sem stendur frammi fyrir fjárnámi, sýna að tilefni sé til endurskoðunar.
Í fyrradag sögðum við frá 82 ára konu sem þurfti að selja húsið sitt til að greiða upp námslán sonar hennar sem hún gekk í ábyrgð fyrir á tíunda áratugnum. Ein krafa stendur eftir og hyggst sýslumaður nú framkvæma fjárnám hjá henni vegna skuldarinnar. Líkt og við höfum greint frá hefur þetta ábyrgðarmannakerfi nú verið lagt af en þó ekki afturvirkt í tilviki þeirra lána sem voru í vanskilum og situr því hópur eldra fólks eftir, sumt með miklar skuldir á bakinu, vegna kerfis sem í dag þykir ekki ástæða til að viðhafa. „Maður hefur auðvitað mjög mikla samúð með þessari konu og þeim eldri borgurum sem hafa lent í því að hafa skrifað upp á lán og standa eftir í miklum skuldum vegna þessa. Og maður skilur að fólki finnist þetta óskiljanlegt, að þarna sé gengið á eftir ábyrgðarmönnum sem skrifuðu upp á lán,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra. Háskólaráðherra hefur þess vegna óskað eftir gögnum um þennan hóp ábyrgðarmanna sem skilinn var eftir þegar kerfið var lagt af. „Af hverju þessi hópur var skilinn eftir? Hvað er þessi hópur stór? Og hvernig gengur að innheimta? Það virðist vera að innheimta á þessum ábyrgðum gangi mjög illa og borgi sig eiginlega varla. Þess vegna hef ég óskað eftir betri gögnum um þennan hóp og er búin að taka þetta inn í umræðu um endurskoðun á núverandi lögum.“ Líkt og fram kom í frétt okkar í gær nemur heildarupphæð þeirra ábyrgða sem enn hvíla á lánasjóðnum, eftir niðurfellingu þeirra, um fjórum milljörðum króna og árið 2021 var farið í aðfarargerðir hjá 105 ábyrgðarmönnum og í öllum tilvikum var fjárnám árangurslaust. „Þarna sést alveg svart á hvítu að það innheimtist mjög lítill hluti af því sem er útistandandi gagnvart þessum ábyrðgarmönnum og það gefur alveg tilefni til endurskoðunar.“
Námslán Háskólar Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Þurfti að selja húsið til að greiða upp gamalt námslán sonar síns Sýslumaður hyggst framkvæma fjárnám hjá 82 ára gamalli konu vegna námslána sem hún gekk í ábyrgð fyrir á tíunda áratugnum hjá syni sínum. Annar sonur konunnar segir skítt að þegar ábyrgðarmannakerfið var afnumið hafi það ekki náð til ábyrgða á lánum í vanskilum. Konan segir málið eyðileggja fyrir henni efri árin. 22. mars 2023 19:12 Óboðlegt lánasjóðskerfi bjóði upp á hagnaðardrifnar ákvarðanir Yfirlögfræðingur hjá umboðsmanni skuldara segir ótækt að einkaaðilar stundi innheimtu fyrir lánasjóð námsmanna enda hafi þeir hag af því að fá greiddan innheimtukostnað. Hún vill að innheimtan sé á vegum ríkisins en ekki lögmanna út í bæ og segir það stór mistök að ábyrgðarmannakerfið hafi ekki verið lagt af í heild sinni. 23. mars 2023 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Sjá meira
Þurfti að selja húsið til að greiða upp gamalt námslán sonar síns Sýslumaður hyggst framkvæma fjárnám hjá 82 ára gamalli konu vegna námslána sem hún gekk í ábyrgð fyrir á tíunda áratugnum hjá syni sínum. Annar sonur konunnar segir skítt að þegar ábyrgðarmannakerfið var afnumið hafi það ekki náð til ábyrgða á lánum í vanskilum. Konan segir málið eyðileggja fyrir henni efri árin. 22. mars 2023 19:12
Óboðlegt lánasjóðskerfi bjóði upp á hagnaðardrifnar ákvarðanir Yfirlögfræðingur hjá umboðsmanni skuldara segir ótækt að einkaaðilar stundi innheimtu fyrir lánasjóð námsmanna enda hafi þeir hag af því að fá greiddan innheimtukostnað. Hún vill að innheimtan sé á vegum ríkisins en ekki lögmanna út í bæ og segir það stór mistök að ábyrgðarmannakerfið hafi ekki verið lagt af í heild sinni. 23. mars 2023 20:00