fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
433Sport

Tímabil Arsenal ræðst á Evrópudeildinni – „Allt eða ekkert“

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 8. apríl 2021 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímabil Arsenal hingað til hefur valdið vonbrigðum. Liðið á aðeins möguleika á titli í Evrópudeildinni og hefur spilað langt undir væntingum í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal tekur á móti Slavia Prag í kvöld í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og eini möguleiki liðsins á sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili er að vinna Evrópudeildina. Arteta segir að nú snúist þetta um hvort Arsenal takist „allt eða ekkert.“

„Við viljum komast áfram í undanúrslit keppninnar og vitum hversu mikilvægur þessi leikur er,“ sagði Arteta á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins.

Arsenal tapaði nokkuð sannfærandi fyrir Liverpool um síðustu helgi og Arteta skorar á leikmenn að stíga upp en liðið hefur hlotið mikla gagnrýni.

„Þegar gagrýnin snýst að okkar spilamennsku gegn Liverpool þá þurfum við bara að taka því vegna þess að hún á rétt á sér. Nú þurfum við að svara á vellinum og sýna hvað við getum,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal.

Leikur Arsenal og Slavia Prag í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar hefst klukkan 19 í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mjög óvænt nafn orðað við risaskipti til Þýskalands – Kom í úrvalsdeildina í janúar

Mjög óvænt nafn orðað við risaskipti til Þýskalands – Kom í úrvalsdeildina í janúar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Bar saman Íslendingana og þann besta – „Allir í tómum æsing“

Bar saman Íslendingana og þann besta – „Allir í tómum æsing“
433Sport
Í gær

75 ára en getur ekki sagt skilið við boltann

75 ára en getur ekki sagt skilið við boltann
433Sport
Í gær

Bayern fékk höfnun frá Crystal Palace – Eftirsóttur eftir ótrúlegan árangur

Bayern fékk höfnun frá Crystal Palace – Eftirsóttur eftir ótrúlegan árangur
433Sport
Í gær

13 ára Palmer sendi skilaboð á leikmann Chelsea – Sjáðu hvað hann skrifaði

13 ára Palmer sendi skilaboð á leikmann Chelsea – Sjáðu hvað hann skrifaði
433Sport
Í gær

Romano segir að Andri Lucas sé eftirsóttur af mun stærra félagi

Romano segir að Andri Lucas sé eftirsóttur af mun stærra félagi