Handbolti

Enn með glórulausar ákvarðanir en sum mörkin stórkostleg

Sindri Sverrisson skrifar
Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skeggræddu málin í Seinni bylgjunni í gærkvöld.
Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skeggræddu málin í Seinni bylgjunni í gærkvöld. Stöð 2 Sport

Túnisbúinn Hamza Kablouti er farinn að láta til sín taka með nýliðum Víkings og átti stóran þátt í fyrsta sigri liðsins í Olís-deildinni í handbolta á þessari leiktíð.

Kablouti skoraði níu mörk úr nítján skotum í 26-22 sigri Víkings gegn HK í gærkvöld:

„Svo er hann að stela, átti stoðsendingu, og það er „attitude“ í honum eins og við sjáum af þessari snuddu og fagninu hjá honum. Það er smá leikari í honum, gaman að fylgjast með honum,“ sagði Róbert Gunnarsson þegar rætt var um Kablouti í Seinni bylgjunni.

„Hann tekur ekkert alltaf svakalega flottar ákvarðanir en sum mörkin hans eru stórkostleg, það verður ekki af honum tekið,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson en umræðuna má sjá hér að neðan.

Klippa: Seinni bylgjan - Hamzatólg sem bragð er af

Kablouti hóf leiktíðina með Aftureldingu en náði ekki að festa sig í sessi þar og var lánaður til nýliða Víkings þar sem hann fær meira svigrúm til að láta að sér kveða:

Ákvarðanirnar ekki eins dýrar

„Ég held að hann eigi bara eftir að verða betri og betri. Hann fékk ekki þennan tíma, réttilega, hjá Aftureldingu. Hjá Víkingi mun hann fá tíma. Það mun taka tíma fyrir hann að aðlagast en mér finnst hann vera farinn að vinna betur fyrir liðið. Hann er enn með glórulausar ákvarðanir en þær eru færri en þær voru hjá Aftureldingu,“ sagði Róbert.

„Þessar ákvarðanir eru heldur ekki jafndýrar og þegar hann var hjá Aftureldingu. Þá vissi hann að hann hefði mikið styttri tíma, allt var mikið þvingaðra og undir meiri pressu, svo hvert slakt skot hjá honum var mikið dýrara en það er hjá Víkingi,“ bætti Ásgeir við.

„Þeir fengu hann til þess að vera með níu mörk í svona leikjum og núna hefur það heppnast. Það er „value“ í því að hafa leikmann sem skýtur 20 sinnum á markið. Auðvitað vill hann alltaf skora en hann er ekkert í molum þó að nýtingin hans sé slök. Hann heldur bara áfram og áfram,“ sagði Ásgeir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×