BÍ segir sig úr Alþjóðasambandi blaðamanna

Ljósmynd/Colourbox

Blaðamannafélag Íslands hefur ákveðið að segja sig úr Alþjóðasambandi blaðamanna (IFJ) í mótmælaskyni. Slíkt hið sama gera blaðamannafélögin í Noregi, Danmörku og í Finnlandi. 

Þetta staðfesti Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, í samtali við mbl.is. Von er á tilkynningu um málið á vef félagins.

Í umfjöllun á vef norska ríkisútvarpsins NRK, þar sem einnig er greint frá ákvörðun BÍ, segir að ástæðurnar fyrir úrsögninni séu þær að lýðræðislegir ferlar hjá IFJ séu í ólestri auk þess sem vísað er til viðbragðsleysis IFJ gagnvart afstöðu rússneska blaðamannafélagsins hvað varðar stríðið í Úkraínu. 

Fram kom í frétt á vef BÍ í desember, að deilan ætti sér langan aðdraganda, en hún hófst strax árið 2008, þegar Rússar hernámu Abkasíu-hérað í Georgíu, stofnuðu þar héraðsfélag rússnesku blaðamannasamtakanna sem fékk sem slíkt aðild að IFJ, athugasemdalaust af hálfu stjórnenda IFJ. Sú ákvörðun IFJ varð síðan til þess að blaðamannasamtökin í Georgíu gengu úr IFJ. 

Síðan hefur það bætst við, að stjórnendur IFJ hleyptu nýjum héraðsfélögum rússnesku blaðamannasamtakanna í hernumdum héruðum Úkraínu inn, rétt eins og Abkasíufélaginu áður. Ekki hefur verið brugðist við kröfu norrænu félaganna um að rússnesku blaðamannasamtökunum yrði vísað úr IFJ, að því er sagði í umfjöllun á vef BÍ í desember. 

Þá kom fram, að það taki sex mánuði fyrir úrsögnina að taka gildi. 

Uppfært kl. 13:55

Í tilkynningu á vef Blaðamannafélags Íslands, segir Sigríður Dögg að ástæðan fyrir úrsögninni sé sú „að IFJ hafa reynst ófær um að gera úrbætur í starfsemi sinni í samræmi við gagnrýni frá Norrænu blaðamannafélögunum og fleiri félögum, sem hefur verið viðvarandi í meira en tíu ár. Við erum ósátt við skipulag þinga og kosninga og skort á gagnsæi í ákvarðanatöku.“

Tekið er fram að Norrænu blaðamannafélögin hafi ítrekað kallað eftir umbótum á starfsháttum IFJ. 

Bent er á, að forysta IFJ hafi til að mynda látið það viðgangast að rússneska aðildarfélagið fylgdi eftir herskárri stefnu Rússa í Úkraínu með því að stofna héraðsfélög rússnesku blaðamannasamtakanna á herteknum svæðum sem hafa þar með fengið sjálfkrafa aðild að IFJ. Það sama hafi gerst í Abkasíu, þó að þetta georgíska hérað sé ekki viðurkennt sem sjálfstætt af neinum öðrum en Rússlandi, Níkaragva og Venesúela. Ennfremur valdi IFJ að halda ársþing sitt í Óman, þar sem svo sannarlega ríkir ekki fjölmiðlafrelsi. 

Ekki auðveld ákvörðun

„Þetta er ekki auðveld ákvörðun, en við getum ekki verið meðlimur í alþjóðlegum blaðamannasamtökum þar sem vinnubrögð, menning og ákvarðanataka stenst alls ekki kröfur okkar um gagnsæi og lýðræðislegu ferli er ábótavant,“ er enn fremur haft eftir Sigríði Dögg. 

„Stjórn BÍ gaf grænt ljós um miðjan desember á að félagið tilkynnti um úrsögn sína úr IFJ, ef forysta alþjóðasamtakanna brygðist ekki við kröfum norrænu félaganna. Úrsögnin er þó gerð með þeim fyrirvara að hún verði samþykkt á aðalfundi félagsins, enda kveða lög BÍ að óbreyttu á um að BÍ skuli vera aðili að IFJ. 

„Við, formenn norrænu blaðamannafélaganna fimm, funduðum í síðustu viku með æðstu stjórnendum IFJ – forseta, framkvæmdastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra, en því miður reyndist enginn vilji til að koma til móts við umbótakröfur okkar og lítill skilningur virtist á gagnrýni okkar. Við höfum knúið á um breytingar hjá IFJ í meira en áratug, svo sem um meira gagnsæi í kringum kosningar og aðrar stórar ákvarðanir innan IFJ. Það hefur ekki borið árangur og við höfum ekki trú á því að það gerist nema með grundvallarbreytingum á stjórnskipan, menningu og viðhorfum sem við sjáum ekki að þau sem nú halda um stjórnartaumana hafi áhuga eða vilja til að ráðast í,“ segir Sigríður Dögg.

Sex mánaða uppsagnarfrestur er á úrsögninni. Verði úrsögnin samþykkt á aðalfundi BÍ í mars (og lögum félagsins breytt til samræmis) mun hún taka gildi í lok júlí í sumar. 

Félög blaðamanna í Danmörku, Noregi og Finnlandi segja sig samtímis úr IFJ. Sænska blaðamannafélagið tekur undir gagnrýni norrænu systurfélaganna en tekur sér af sérstökum ástæðum lengri frest til að taka endanlega ákvörðun um úrsögn.

Hingað til hefur IFJ séð um útgáfu alþjóðlegra blaðamannaskírteina. Enginn íslenskur blaðamaður hefur þó sótt um slíkt skírteini á síðustu árum. Hin norrænu félögin sem nú ætla að ganga úr IFJ hafa skipað starfshóp til að finna lausn á þessu, svo að félagsmenn þeirra geti eftir sem áður fengið útgefin alþjóðleg blaðamannaskírteini. 

Norrænu félögin verða eftir sem áður félagar í evrópsku blaðamannasamtökunum, EFJ, sem hafa starfað með mun lýðræðislegri og faglegri hætti,“ segir í tilkynningunni á vef BÍ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert