Sterkur íslenskur hópur – Hákon og Elvar með

Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi 18 leikmenn fyrir leiki í …
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi 18 leikmenn fyrir leiki í undankeppni EM 2024. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, hefur valið þá 18 leikmenn sem koma til með að mæta Ísrael og Eistlandi í undankeppni EM 2024 í næsta mánuði.

Lið Íslands mætir Ísrael miðvikudaginn 12. október klukkan 19.45 á Ásvöllum í Hafnarfirði og ferðast svo til Eistlands þar sem það mætir heimamönnum laugardaginn 15. október klukkan 16.

Athygli vekur að Hákon Daði Styrmisson, hornamaðurinn öflugi hjá Gummersbach í Þýskalandi, er í leikmannahópnum eftir að hafa nýlega jafnað sig á erfiðum hnémeiðslum og Elvar Örn Jónsson hjá Melsungen í Þýskaland er einnig í hópnum en hann hefur ekkert leikið handbolta síðan í apríl þegar hann meiddist illa á öxl í leik með íslenska landsliðinu gegn því austurríska.

Leikmannahópurinn:

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe Esbjerg (45/1)

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (242/16)

Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (35/1)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (69/80)

Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (158/618)

Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (89/276)

Daníel Þór Ingason, Balingen-Weistetten (37/11)

Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (21/26)

Elvar Ásgeirsson, Ribe Esbjerg (7/15)

Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (52/133)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (37/68)

Hákon Daði Styrmisson, Vfl Gummersbach (6/23)

Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (56/82)

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (66/216)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (47/115)

Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (29/27)

Viggó Kristjánsson, SC Leipzig (31/70)

Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (62/33)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert