Síðasti landsleikur Arnars eina skiptið sem við höfum tapað fyrir Liechtenstein Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2021 14:30 Arnar Þór Viðarsson öskrar á leikmenn íslenska liðsins í síðasta leik. Vísir/Jónína Guðbjörg Það er ekki mikill meðbyr með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu þessa dagana og forföll leikmanna ofan á öll önnur forföll síðustu vikna og mánaða munu gera verkefnið á móti Liechtenstein í kvöld enn erfiðara fyrir íslenska liðið.
Ísland á að vinna Liechtenstein og gerði það með sannfærandi hætti í fyrri leiknum úti í Liechtenstein þar sem íslensku strákarnir unnu 4-1. Staðan á íslenska liðinu í dag er hins vegar allt önnur fyrir þetta uppgjör milli tveggja neðstu liða riðilsins. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, lék á sínum tíma 52 A-landsleiki en hann endaði landsliðsferil sinn á októberkvöldi á Rheinpark í Liechtenstein. Arnar lék þá allar níutíu mínúturnar í 3-0 skelli Íslands á móti heimamönnum. Mario Frick kom heimamönnum í 1-0 á 28. mínútu og varamaðurinn Thomas Beck innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla undir lok leiksins. Þetta eru ein verstu úrslitin í sögu íslenska landsliðsins og síðasti landsleikurinn sem Eyjólfur Sverrisson stjórnaði. Ólafur Jóhannesson tók við landsliðinu í framhaldinu og Arnar var aldrei aftur valinn í landsliðið þrátt fyrir að vera ekki orðinn þrítugur á þessum tíma. Arnar og Eiður Smári Guðjohnsen voru meðal fjögurra byrjunarliðsmanna í Liechtenstein sem voru ekki valdir í hópinn í næsta leik (þann fyrsta undir stjórn Ólafs Jóhannssonar) en Eiður Smári tók þá út leikbann. Hinir voru þeir Ívar Ingimarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson. Eiður Smári spilaði 38 landsleiki til viðbótar á sínum ferli en líkt og Arnar Þór þá voru spiluðu þeir Ívar og Jóhannes Karl ekki aftur fyrir íslenska landsliðið. Ívar var 30 ára en Jóhannes Karl aðeins 27 ára. Eftir fjóra heimaleiki í röð án sigurs og með ungt og vængbrotið lið þá óttast margir að íslenska liðið gæti möguleika lent í vandræðum með neðsta lið riðilsins. Þeir Arnar Þór og Eiður Smári verða að finna farsælar lausnir fyrir leikinn í kvöld. Liðið hefur enn ekki unnið heimaleik undir þeirra stjórn og það er því kominn tími á einn sigur í Laugardalnum í kvöld.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Getur unnið fyrsta sigurinn á sama stað og hann fékk skell í síðasta landsleiknum Arnar Þór Viðarsson er mættur aftur til Vaduz í Liechtenstein þar sem landsleikjaferill hans endaði með vandræðalegu tapi fyrir rúmum fjórán árum. 31. mars 2021 13:01 Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 1-4 | Kærkominn sigur í Vaduz Ísland vann kærkominn sigur á Liechtenstein, 1-4, þegar liðin áttust við á Rheinpark Stadion í Vaduz í kvöld. Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson (víti) skoruðu mörk Íslendinga. Yanik Frick skoraði mark Liechtensteina beint úr hornspyrnu. 31. mars 2021 20:30 Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira
Getur unnið fyrsta sigurinn á sama stað og hann fékk skell í síðasta landsleiknum Arnar Þór Viðarsson er mættur aftur til Vaduz í Liechtenstein þar sem landsleikjaferill hans endaði með vandræðalegu tapi fyrir rúmum fjórán árum. 31. mars 2021 13:01
Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 1-4 | Kærkominn sigur í Vaduz Ísland vann kærkominn sigur á Liechtenstein, 1-4, þegar liðin áttust við á Rheinpark Stadion í Vaduz í kvöld. Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson (víti) skoruðu mörk Íslendinga. Yanik Frick skoraði mark Liechtensteina beint úr hornspyrnu. 31. mars 2021 20:30