Nökkvi fylgir hjartanu og yfirgefur Swipe Máni Snær Þorláksson skrifar 18. mars 2023 17:52 Nökkvi Fjalar Orrason hefur ákveðið að yfirgefa Swipe. Nökkvi Fjalar Orrason hefur sagt skilið við fyrirtækið Swipe. Meðeigendur Nökkva taka við keflinu en sjálfur ætlar hann að einbeita sér að nýju félagi sem útbýr hugbúnað fyrir áhrifavalda. „
Það að yfirgefa Swipe var ekki eitthvað sem ég hefði getað ímyndað mér fyrir nokkrum mánuðum síðan. Þegar meðeigendur mínir vildu fara í aðra átt með Swipe þurfti ég að fylgja hjartanu,“ segir Nökkvi í færslu sem hann birti á Instagram-síðu sinni í dag. Nökkvi segir svo að það sé erfitt að segja skilið við fyrirtækið sem hann hefur verið hluti af síðan það var stofnað fyrir fjórum árum síðan. Hann segist vera stoltur af því sem tekist hefur að byggja upp og á sama tíma þakklátur fyrir vináttuna sem skapaðist á meðan. Ísland í dag tók viðtal við Nökkva Fjalar um útrás Swipe í lok síðasta árs: Leggur áherslu á rekstur í Bretlandi Greint var frá því í Morgunblaðinu í dag að Nökkvi væri að hætta í Swipe. Þar kemur fram að ástæðan sé sú að Gunnar Birgisson og Alexandra Sól Ingólfsdóttir, meðeigendur Swipe, vilji einbeita sér að rekstri fyrirtækisins á Íslandi. Nökkvi vill aftur á móti leggja áherslu á rekstur í Bretlandi. Þar hefur hann stofnað nýtt félag, sem sér um þróun og rekstur hugbúnaðs fyrir áhrifavalda. „Það var því niðurstaðan að þau kaupa mig út úr Swipe og ég kaupi þau út úr breska félaginu,“ er haft eftir Nökkva í Morgunblaðinu. Getur ekki beðið Í færslunni á Instagram segist Nökkvi ætla að halda áfram á þeirri vegferð að hjálpa áhrifavöldum úti um allan heim. Nú verði það þó með öðru teymi og undir öðru vörumerki. „Ég get ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað við erum búin að gera og það er bara byrjunin!“ View this post on Instagram A post shared by Nikki Orrason (@nokkvifjalar) Að lokum leggur hann áherslu á mikilvægi þess að fylgja hjartanu og gera sitt besta. „Ég veit að það er erfitt en þú munt uppskera að lokum. Lífið er of stutt og dýrmætt til að gera eitthvað annað!“
Íslendingar erlendis Samfélagsmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira