Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. nóvember 2021 13:09 Jón Þór Ólafsson umboðsmaður framboðslista Pírata og Ingi Tryggvason oddviti yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis. Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl.
Í grein Jóns Þórs segir hann kæruna kæruna byggja á lýsinguna málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni. Jón Þór vísar til gagna úr greinagerðinni sem sýni að: 1. Oddviti yfirkjörstjórnar norðvesturkjördæmis (YNV) skapaði sér með lögbroti tækifæri til að svindla á atkvæðunum í Alþingiskosningum, 2. Oddvitinn hraðaði svo endurtalningu atkvæðanna þannig að lögbundið eftirlit var ómögulegt, 3. Oddvitinn fór þá rangt með í gerðabók, í fjölmiðlum, fyrir þingnefnd og lögreglu þau málsatvik sem benda á mögulega sekt hans. Kæran beini því til lögreglu að rannsaka sérstaklega hvort gögn málsins sýni að nægar líkur séu á því að oddviti yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi hafi brotið 128 grein laga um kosningar til Alþingis með því að hafa vísvitandi rangfært atkvæðagreiðslu. Séu fyrir hendi næg sönnunargögn sé rétt samkvæmt lögum að gefa út ákæru þess efnis, en slíkt brot varðar fangelsi allt að fjórum árum. Kæran beinir því jafnframt til lögreglu að rannsaka önnur möguleg lögbrot við framkvæmd kosninganna er varða sektum. Ein mínúta dugi til svindls Jón Þór vísar til þess að oddvitinn hafi verið einn með óinnsigluðum atkvæðum í rúman hálftíma, en ein mínúta nægi til að rangfæra atkvæðagreiðsluna með strokleðri og blýanti. Í málsatvikalýsingu undirbúningkjörbréfanefndar segir: „Í upplýsingum lögreglu liggur fyrir að oddviti yfirkjörstjórnar hafi komið í talningarsal kl. 11.59 [...] Hefur oddviti yfirkjörstjórnar staðfest á fundi með nefndinni að hann hafi mætt fyrstur á staðinn skömmu fyrir tólf á hádegi sunnudaginn 26. september 2021. [...] Samkvæmt upplýsingum lögreglu liggur fyrir að á tímabilinu kl. 11.59 til kl. 12.28 var starfsfólk hótelsins á ferðinni inn og út úr fremri sal. Einnig liggur fyrir að næsti fulltrúi yfirkjörstjórnar til að mæta á eftir oddvita hafi komið kl. 12.35.“ Jón Þór segir því liggja fyrir og Ingi hafi staðfest að hafa verið einn með óinnsigluðum atkvæðunum, sem eitt og sér sé ekki heimilt samkvæmt lögum og gæti varðað sektum. „Í þessu tilfelli var um að ræða nægan tíma fyrir viðkomandi til að sýsla með hin óinnsigluðu kjörgögn til að rangfæra atkvæðagreiðsluna með því að stroka út atkvæði 9 kjósenda og merkja á atkvæðaseðilinn við aðra flokka í staðinn. Slíkt varðar fangelsi allt að fjórum skv. 128 gr. laga um kosningar til Alþingis.“ Til að meta líkur á slíkum kosningabrotum sé mikilvægt að horfa til þess sem fram kemur í málsatvikalýsingu í greinargerð undirbúningsnefndar og gerðabók yfirkjörstjórnar: „Í fyrsta C atkvæðabunka sem oddviti tók upp reyndust vera átta atkvæði sem tilheyrðu D lista og eitt atkvæði sem tilheyrði B lista.“ Í málsatvikalýsingu URK segir svo: „Í samtali við nefndina kom fram í máli tveggja fulltrúa í yfirkjörstjórn að öll rangt flokkuðu atkvæðin í C-lista bunka hafi verið inni í miðjum bunkanum sem tekinn var fyrstur upp.“ Tínir til dæmi Þetta þýði að eftir að oddviti yfirkjörstjórnar var meira eða minna einn með óinnsigluðum atkvæðunum í meira en hálftíma hafi hann sjálfur í fyrsta fimmtíu atkvæða bunka sem hann skoðaði öll níu atkvæðin sem breyttu því hvaða frambjóðendur yrðu þingmenn. Þau hafi hann fundið í efsta af 22 atkvæðabunkum Viðreisnar. „Sú aðgerð að nota blýant og strokleður til að breyta 9 atkvæðum Viðreisnar í aðra flokka væri hæglega framkvæmanleg á innan við mínútu. Ef sá aðili hefði 5 mínútur gæti hann fundið sérstaklega atkvæðaseðla þar sem kjósandi hafi ekki með X-inu sínu marið kjörseðilinn og því engin ummerki ef atkvæði hans væri strokað út.“ Gögn Alþingis sýni að Ingi Tryggvason hafi gert kosningasvind mögulegt: 1. Oddvitinn ákvað að innsigla ekki atkvæðin (lögbrot staðfest af lögreglu). 2. Oddvitinn ákvað að vera einn með atkvæðunum í rúman hálftíma (mögulegt lögbrot þar sem þau voru óinnsigluð). Hafi víða farið með rangt mál Þá sýni gögn Alþingis að oddviti yfirkjörstórnar hafi komið í veg fyrir lögbundið eftirlit með mögulegu kosningasvindli. Nefnir Jón Þór tvö dæmi um möguleg lögbrot: 3-4. Oddvitinn ákvað að flýta endurtalningu og ákvað að auglýsa ekki talninguna svo kjósendum gefst ekki færi á að vera viðstadda eins og lög kveða á um. 5-6. Oddvitinn ákvað að vanrækja að boða umboðsmenn lista eða kveða til staðgengla þeirra til að sinna eftirliti með talningunni eins og lög kveða á um. Gögn Alþingis sýna enn fremur að Ingi hafi farið rangt með í gerðabók, í fjölmiðlum, fyrir þingnefnd og lögreglu þau málsatvik sem bendi til mögulegs kosningasvindls. Máli sýnu til stuðnings nefnir hann dæmi um mögulegt lögbrot. 7. Oddvitinn ákvað að bóka í gerðabók kosinganna atvikalýsingu sem er sannanlega röng og til þess fallin að fela hans eigin hugsanlegu lögbrot við framkvæmd talningar atkvæða í Alþingiskosningum. Þá krefst Jón Þór þess að lokum í kærunni að málið verði tekið til rannsóknar lögreglu án tafar enda málið þess eðlis. „Nauðsynlegt er að lögregla framfylgi sínum skyldum að fullu eins og kveðið er á um þær í lögum um kosningar þegar þeir sem bera ábyrgð á framkvæmd kosninganna fara mögulega á svig við lögin,“ segir Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður lista í nýafstöðnum kosningum, fyrrverandi Alþingismaður, fyrrverandi formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og framsögumaður frumvarps um kosningalög nr. 112/2021.
Píratar Norðvesturkjördæmi Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Lögreglumál Alþingi Tengdar fréttir Oddviti yfirkjörstjórnar norðvestur kærður til lögreglu fyrir mögulegt kosningasvindl Kæran byggir á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa (URK) og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni. 24. nóvember 2021 13:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Oddviti yfirkjörstjórnar norðvestur kærður til lögreglu fyrir mögulegt kosningasvindl Kæran byggir á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa (URK) og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni. 24. nóvember 2021 13:01