Vandræði við bóluefnaframleiðslu Pfizer Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. desember 2020 22:07 Framleiðsla við bóluefni Pfizer og BioNTech hefur frestast vegna skorts á hráefnum í efnið. Aðeins helmingi þeirra skammta sem dreifa átti fyrir árslok verður dreift. Getty/Tayfun Coskun Lyfjaframleiðandinn Pfizer gerir ráð fyrir því að geta aðeins dreift helmingi þeirra Covid-19 bóluefnaskammta sem dreifa átti fyrir lok þessa árs. Að sögn framleiðandans er það vegna vandamála sem upp hafa komið við framleiðslu hráefna, sem nauðsynleg eru bóluefninu.
Pfizer gerir þó ráð fyrir því að dreifa meira en milljarði skammta árið 2021. Pfizer og þýska lyfjafyrirtækið BioNTech, sem framleiðir bóluefnið með Pfizer, vonuðust til þess að geta dreift 100 milljón bóluefnaskömmtum fyrir árslok en miðað við nýjustu vendingar munu það aðeins verða 50 milljón skammtar. Þetta kemur fram í frétt Wall Street Journal. Bresk heilbrigðisyfirvöld ákváðu í gær að heimila notkun bóluefnisins frá Pfizer og BioNTech og verður það þar með fyrsta ríkið á Vesturlöndum til að hefja dreifingu efnisins. Bretland hefur pantað 40 milljón skammta af bóluefninu frá Pfizer og BioNTech, sem mun nýtast í að bólusetja 20 milljón manns, en tvo skammta þarf til bólusetningar. Yfirvöld á Bretlandi lýstu því yfir í nóvembermánuði að þau stefndu á að fá allt að 10 milljón bóluefnaskammta á þessu ári, en nú er talið að fjórar eða fimm milljónir skammta berist til Bretlands fyrir árslok. Hófu aukna framleiðslu hráefna fyrr en vanalega Bóluefni Pfizer og BioNTech er einnig í skoðun hjá lyfjaeftirliti Bandaríkjanna, og gert er ráð fyrir því að leyfi fyrir notkun efnisins verði gefið út um miðjan mánuðinn og að dreifing hefjist fyrir árslok. Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna er einnig með bóluefni frá Cambridge háskóla og Moderna í skoðun og gæti dreifing á því hafist fyrir jól. Pfizer kaupir hráefni í bóluefnið frá fyrirtækjum í Bandaríkjunum og Evrópu en erfitt hefur reynst að auka framleiðslu á efnunum undanfarinn mánuð. Aukin framleiðsla hráefnanna hófst áður en leyfi fékkst fyrir notkun bóluefnisins, en undir venjulegum kringumstæðum myndu lyfjafyrirtæki bíða með það þar til efnið hefur fengið leyfi. Bandaríkjastjórn hefur pantað 100 milljón skammta af bóluefni Pfizer, en hefur svigrúm til að panta 500 milljón skammta til viðbótar. Ríkisstjórn Íslands hefur einnig skrifað undir samning við Pfizer um kaup á 85 þúsund skömmtum af efninu. Þá hefur Evrópusambandið pantað 200 milljón skammta af bóluefninu með svigrúm fyrir aukalegum 100 milljón skömmtum. Japan hefur pantað 120 milljón bóluefnaskammta og ríki í Suður-Ameríku og í Kyrrahafinu hafa einnig lagt inn stórar pantanir fyrir efninu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lyf Bólusetningar Tengdar fréttir Bólusetningar hefjist á fyrstu vikum næsta árs Heilbrigðisráðherra segir að bólusetningar við kórónuveirunni hefjist á fyrstu vikum næsta árs. Hjarðónæmi við veirunni geti orðið að veruleika strax á fyrsta ársfjórðungi. 3. desember 2020 17:56 Ríkið kaupir bóluefni af Pfizer fyrir 85 þúsund manns Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. 3. desember 2020 11:59 Segir ótímabært að gera ráð fyrir því að bólusetning hefjist fljótlega eftir áramót Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hvetur til raunhæfrar bjartsýni varðandi það hvenær bólusetning gegn Covid-19 hér á landi. Hann segir ótímabært að nánast gera ráð fyrir því að bólusetning geti hafist fljótlega eftir áramót og ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu. 3. desember 2020 11:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Erlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Sjá meira
Bólusetningar hefjist á fyrstu vikum næsta árs Heilbrigðisráðherra segir að bólusetningar við kórónuveirunni hefjist á fyrstu vikum næsta árs. Hjarðónæmi við veirunni geti orðið að veruleika strax á fyrsta ársfjórðungi. 3. desember 2020 17:56
Ríkið kaupir bóluefni af Pfizer fyrir 85 þúsund manns Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. 3. desember 2020 11:59
Segir ótímabært að gera ráð fyrir því að bólusetning hefjist fljótlega eftir áramót Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hvetur til raunhæfrar bjartsýni varðandi það hvenær bólusetning gegn Covid-19 hér á landi. Hann segir ótímabært að nánast gera ráð fyrir því að bólusetning geti hafist fljótlega eftir áramót og ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu. 3. desember 2020 11:40