Viðskipti innlent

Play bætir við sig nýjum á­fanga­stað í vetrar­á­ætluninni

Atli Ísleifsson skrifar
Byrjað verður að fljúga til Amsterdam í byrjun desember.
Byrjað verður að fljúga til Amsterdam í byrjun desember. vísir/sigurjón

Flugfélagið PLAY hefur bætt Amsterdam í Hollandi við vetraráætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá og með 3. desember.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Play sé með þessu að bregðast við aukinni eftirspurn á flugi til og frá Íslandi samhliða batnandi stöðu kórónuveirufaraldursins. 

Félagið hafi fengið lendingarleyfi á Schiphol-flugvelli, sem er þriðji stærsti flugvöllur Evrópu,  og hefst miðasala í dag.

Haft er eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að sala flugmiða hafi tekið kipp síðustu vikur og að félagið finni greinilega að fólk sé tilbúið að ferðast. 

„Við teljum því tímabært að útvíkka leiðarkerfi okkar í Evrópu og bjóða viðskiptavinum upp á lág fargjöld til Amsterdam. Við eigum ekki von á öðru en að þessum nýja áfangastað okkar verði tekið mjög vel af Íslendingum sem og Hollendingum sem vilja ferðast til Íslands,“ er haft eftir Birgi. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×