Pálína Þorsteinsdóttir segist stundum fá skrýtnar en þó skemmtilegar hugmyndir. Pálína fékk eina slíka á morgungöngu sinni nýlega en hugmyndin var að dreifa fallegum og jákvæðum skilaboðum til gangandi vegfarenda í Grafarvoginum.
Fyrir nokkrum dögum ákvað Pálína ásamt dóttur sinni að skrifa umrædd skilaboð til vegfarendanna á steina.
„Við fórum niður í fjöru og fundum steina sem við skrifuðum á falleg og jákvæð orð. Dreifðum þeim svo meðfram göngustígnum á strandlengjunni í Grafarvogi Norður. Ætlunin er að gleðja fólk á göngu,“ skrifaði Pálína á Facebook-síðu sinni um helgina en DV fékk góðfúslegt leyfi hjá Pálínu til að fjalla um málið
Þá óskaði Pálína að lokum eftir því að steinarnir fái að standa og að nágrannar sínir njóti þeirra.
Allt kom þó fyrir ekki. Pálína birti færslu í gær þar sem hún greindi frá því að einungis tveir steinar af þeim fjórtán sem þau útbjuggu voru heilir. „Af 14 steinum sem ég hefði átt að sjá á göngu minni í morgun, voru tveir heilir og þrír brotnir, hinir 9 voru hvergi sjáanlegir,“ skrifar Pálína og bætir við grátandi tjákni (e. emoji).
„Allt í allt voru 23 steinar settir á strandlengjuna og vona ég að eitthvað af þeim standi enn.“
Pálína lætur þetta þó ekki hafa alltof mikil áhrif á sig og horfir á málið með jákvæðnina að leiðarljósi. „Þar sem ég er mjög bjartsýn og jákvæð manneskja (að mínu mati ) þá vona ég bara að sá/sú sem tók steinana sem horfnir eru hafi þurft á þeim að halda og skreyti nú garðinn sinn með þeim,“ segir hún.
„Þetta var skemmtilegt verkefni sem við mæðgur létum verða af og það hitti í mark (hjá flestum) og þá erum við ánægðar þótt ég hefði viljað fá að njóta þess sjálf að ganga stíginn og lesa á þá aftur og aftur. Ást og friður