Hátt í tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands Vésteinn Örn Pétursson skrifar 8. júní 2021 20:20 Metfjöldi nemenda stundaði nám við skólann á síðasta skólaári. Vísir/Vilhelm Tæplega tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands í grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Umsóknir um nám við skólann hafa aldrei verið fleiri, ef frá er talið síðasta skólaár.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum. Þar segir að umsóknir í ár hafi verið um 15 prósent færri en síðasta vor, sem hafi verið algert metár. Sé miðað við vorið 2019 eru umsóknir nú þó 12 prósent fleiri. Skólanum bárust nærri 5.750 umsóknir um grunnnám í ár, sem er 15 prósent minna en í fyrra. Þá bárust skólanum 4.070 umsóknir um meistaranám sem einnig er 15 prósentum minna en vorið á undan. Á fjórða hundrað stefna á viðsktiptafræði Félagsvísindasviði bárust rúmlega þúsund umsóknir. Þar af er um þriðjungur, eða 360, umsóknir um nám í viðskiptafræði sem hefur verið vinsælasta námsleið sviðsins að undanförnu. Þá sóttu 220 um nám í lögfræði, 190 í félagsráðgjöf, tæplega 90 í hagfræði og rúmlega 70 í félagsfræði. Heilbrigðisvísindasviði bárust rúmlega 1.750 umsóknir. Þar af eru 415 umsækjendur sem stefna á að þreyta inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði. Samtals verða þó aðeins 95 nemendur teknar inn í þessar tvær deildir. Sextíu í læknisfræði og 35 í sjúkraþjálfun. Því er ljóst að færri komast að en vilja. Þá sækjast rúmlega 400 eftir inngöngu í sálfræði, sem hefur lengi vel verið meðal vinsælustu námsleiða háskólans. Umsóknir í hjúkrunarfræði voru þá tæplega 330, þar af 280 í BS-nám, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Metfjöldi nemenda á liðnum vetri Fjöldi erlendra nema við skólann eykst um 15 prósent milli ára og hópur þeirra telur nú um 1.500 nemendur. „Áhugi erlenda nemenda á skólanum hefur farið stigvaxandi á undanförnum árum og til marks um það voru umsóknirnar tæplega 1.200 árið 2019 og rúmlega 1.000 árið 2016. Þetta hefur gerst samhliða auknu erlendu samstarfi skólans og aukinni athygli sem vísindastarf skólans hefur fengið á erlendum vettvangi.“ Tæplega 16 þúsund manns stunduðu nám við skólann á liðnum vetri og er það metfjöldi. Miðað við brautskráningar nú í vor og fjölda umsókna má reikna með að svipaður fjöldi verði við nám í skólanum á komandi námsvetri.
Háskólar Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira