Skjálftavirkni tók sig aftur upp eftir nóttina klukkan sjö í morgun. Fjórir skjálftar hafa mælst 3,0 eða stærri, sá stærsti mældist 3,5 suðaustan við Sýrlingafell.
Einar Hjörleifsson náttúruvásérfræðingur segir skjálftana alla mælast á þónokkru dýpi, á um 5,7 kílómetra dýpi. Staðan sé enn óbreytt, kvikusöfnun sé á fimm kílómetra dýpi sem valdi spennubreytingum á svæðinu.
Býst við óbreyttri stöðu næstu daga
Enginn gosórói mælist enn. Skjálftarnir í morgun hafa fundist vel í Grindavík en eru þó ekki í líkingu við skjálftana sem fundust í gærnótt. Þá mældist stærsti skjálfti hrinunar 4,8 að stærð rétt vestan við Þorbjörn.
Einar segir að á meðan þennsla sé að aukast megi áfram búast við skjálftavirkni á svæðinu og skjálftum allt upp að stærð 5. Hann á von á því að staðan verði óbreytt næstu daga.