Landsliðsmaður í hungurverkfall

Pavel Ermolinski hungrar í endurkomu á völlinn.
Pavel Ermolinski hungrar í endurkomu á völlinn. mbl.is/Eva Björk

Pavel Ermolinski landsliðsmaður og körfuknattleiksmaður í Val hefur fengið nóg af því  æfingaleysi sem fylgir takmörkunum sóttvarnayfirvalda. Segir hann á twitter að hann hafi hafið hungurverkfall og það muni vara þar til hann fær að æfa eða hann deyr. 

„Í ljósi nýjustu fregna hef ég hafið hungurverkfall. Virkar bæði sem mótmæli og aðhald í æfingalausu umhverfi. Verkfall hefst kl. 22 í kvöld og varir þangað til ég fæ að æfa aftur eða ég dey,“ segir hann á twitter. 

Miðað við þessa yfirlýsingu má ætla að Pawel hafi verið án matar í um 20 klukkustundir. 

Pavel hefur brugðist við fréttinni og sett inn þetta tíst:

Uppfært kl. 21:29

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert