Þórólfur búinn að skila minnisblaði til Willums Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. janúar 2022 14:46 Þórólfur sagði á fundinum í gær allt stefna í hertar aðgerðir. Hann hefur nú skilað nýju minnisblaði en vill ekkert gefa uppi, frekar en fyrri daginn, um innihald þess. Ráðherra eigi að fá að bregðast við því fyrst. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lokið við skrif nýs minnisblaðs vegna stöðunnar í kórónuveirufaraldrinum hér á landi. Blaðinu hefur hann skilað Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Hann vill ekkert gefa uppi um innihald þess að svo stöddu.
Í minnisblaði Þórólfs frá 5. janúar lagði hann til við heilbrigðisráðherra óbreyttar takmarkanir í þrjár til fjórar vikur í viðbót. Þann 10. janúar skiluðu svo Alma Möller landlæknir og Þórólfur sameiginlegu minnisblaði þar sem Þórólfur sagði augljóst að þær sóttvarnaráðstafanir sem gripið hefði verið til og nú sværu í gildi, væru í besta falli að halda COVID-19 faraldrinum í línulegum vexti en bæla hann ekki niður eins og ákjósanlegt væri. Vill koma daglegum smitum í 500 „Stjórnvöld þurfa því að íhuga alvarlega hvort ekki sé tímabært að gripið verði til hertra samfélagslegra aðgerða til að ná betri tökum á faraldrinum samhliða áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðiskerfisins,“ sagði Þórólfur í minnisblaðinu 10. janúar. Að loknum ríkisstjórnarfundi þriðjudaginn 11. janúar tilkynnti Willum Þór heilbrigðisráðherra að takmarkanir yrðu framlengdar um þrjár vikur. Farið hefði verið að öllu eftir tillögum í minnisblaði Þórólfs. Á upplýsingafundi almannavarna í gær kom fram í máli Þórólfs að hann teldi brýnt að koma daglegum fjölda þeirra sem greinast með Covid-19 niður í um 500, það væri tala sem Landspítalinn gæti ráðið við. Um og yfir þúsund greinast á degi hverjum þessa dagana en þeir voru 1101 í gær. Bara til að brýna stjórnvöld Var Þórólfur spurður að því af hverju hann hafi ekki lagt harðari aðgerðir til í minnisblaðinu sem hann skilaði inn í fyrradag með Ölmu landlækni. „Þetta sameiginlega minnisblað var bara til að brýna í raun og veru stjórnvöld og benda þeim á alvarlega stöðu,“ sagði Þórólfur. Aðspurður um hvort ekki þyrfti að herða aðgerðir til að koma tölunum niður í 500 sagði Þórólfur að honum sýndist allt stefna í að setja þyrfti harðari takmarkanir á. „Það er greinilegt og ég held að það sé nokkuð ljóst að ég þurfi ef á eigi að herða aðgerðir þá þarf ég að koma með tillögur um og ég verð fljótur að koma þeim á borðið ef á þarf að halda og mér sýnist stefna allt í það,“ sagði Þórólfur. Síðar á fundinum var Þórólfur spurður að því hvort að von væri á nýju minnisblaði með tillögum að hertum aðgerðum fyrir helgi var svarið stutt og einfalt. „Það er jafn vel von á því.“ Það minnisblað er nú komið á borð heilbrigðisráðherra.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Spítalinn þoli ekki tvo daga í viðbót í óbreyttu ástandi Sóttvarnalæknir segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Búast megi við yfir þúsund smitum á dag út mánuðinn sem Landspítalinn segist engan veginn ráða við. Stjórnvöld framlengdu samkomutakmarkanir um þrjár vikur í dag. 11. janúar 2022 19:56 Bindur vonir við að hjarðónæmi náist á næstu vikum eða mánuðum Sóttvarnalæknir segir Íslendinga nú standa á krossgötum með tilliti til faraldursins. Efla þurfi afkastagetu spítalans og ef það tekst ekki þarf að grípa til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hann bindur vonir við að með bólusetningum og útbreiddum sýkingum verði hægt að ná hjarðónæmi á næstunni. Yfirlæknir á Landspítala segir fyrir öllu að ná fjölda smitaðra niður til að Landspítali ráði við álagið. 11. janúar 2022 13:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Fleiri fréttir Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Sjá meira
Spítalinn þoli ekki tvo daga í viðbót í óbreyttu ástandi Sóttvarnalæknir segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Búast megi við yfir þúsund smitum á dag út mánuðinn sem Landspítalinn segist engan veginn ráða við. Stjórnvöld framlengdu samkomutakmarkanir um þrjár vikur í dag. 11. janúar 2022 19:56
Bindur vonir við að hjarðónæmi náist á næstu vikum eða mánuðum Sóttvarnalæknir segir Íslendinga nú standa á krossgötum með tilliti til faraldursins. Efla þurfi afkastagetu spítalans og ef það tekst ekki þarf að grípa til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hann bindur vonir við að með bólusetningum og útbreiddum sýkingum verði hægt að ná hjarðónæmi á næstunni. Yfirlæknir á Landspítala segir fyrir öllu að ná fjölda smitaðra niður til að Landspítali ráði við álagið. 11. janúar 2022 13:30