Áslaug segir símtöl við lögreglustjóra ekki skráningarskyld Heimir Már Pétursson skrifar 2. mars 2021 19:33 Dómsmálaráðherra segir verklagsreglur ekki gera ráð fyrir að símtöl eins og þau sem hún átti við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um jólin séu skráð sérstaklega. Fjármálaráðherra hafi ekki beðið hana að hlutast til í málinu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra átti tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögreglan upplýsti fjölmiðla í dagbókarfærslu að fjármálaráðherra hafi verið meðal gesta í Ásmundarsal þar sem sóttvarnareglur hafi verið brotnar á þorláksmessu. Þessi símtöl voru ekki skráð í ráðuneytinu, enda segir dómsmálaráðherra ekki kröfu gerða um það. En í ljósi reynslunnar til dæmis varðandi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem meðal annars þurfti að segja af sér vegna út af samskiptum við lögreglu. Ætti ekki að vera búið að setja einhverjar svona reglur í ráðuneytinu? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir eðlilegt að hún leiti upplýsinga hjá æðstu embættismönnum stofnana sem undir hana heyri.Vísir/Vilhelm „Það hafa verið settar reglur. Það eru bæði formleg og óformleg samskipti. Þau eru skráð ef þau snúast um einhverja ákvarðanatöku eða eru um einhver atriði sem talin eru skipta máli. Þá eru þau skráð,“ segir Áslaug Arna. Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar tók málið upp í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Guðmundur Andri Thorsson undrast símtöl dómsmálaráðherra til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm „Voru þetta ekki mikilvæg samskipti? Og ef þau voru ekki mikilvæg afhverju var þá verið að hringja í fólk klukkan hálf fimm á aðfangadag,“ spurði Guðmundur Andri. Dómsmálaráðherra sagði fjölmiðla ítrekað hafa óskað eftir svörum frá henni um hvaða ráðherra hafi verið í Ásmundarsal á þorláksmessu og fjallað um að dagbókafærsla lögreglu hafi verið óvenju ítarleg. „Og eins og sjá má á reglum um skráningu samskipta þá fellur þetta símtal ekki undir ákvæði um skráningu mála. Og upplýsingaöflun einstakra starfsmanna og ráðherra til þess meðal annars að veita fjölmiðlum og almenningi réttar upplýsingar falla einfaldlega ekki undir það ákvæði,“ sagði Áslaug Arna. Að loknum ríkisstjórnarfundi í dag spurðum við dómsmálaráðherra hvort Bjarni Benediktsson hafi beðið hana að grennslast fyrir um þessi mál hjá lögreglunni. „Nei.“ Það var algerlega þitt frumkvæði? „Já ég fékk spurningar frá fjölmiðlum sem ég þurfti að svara og ákvað síðan að svara ekki,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Lögreglan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið. 2. mars 2021 12:44 Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira
Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið. 2. mars 2021 12:44
Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04