Veður

Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku

Atli Ísleifsson skrifar
Gera má ráð fyrir rigningu eða slyddu sunnan- og vestantil í dag.
Gera má ráð fyrir rigningu eða slyddu sunnan- og vestantil í dag. Vísir/Vilhelm

Breytinga er að vænta í veðurlagi í dag en þegar líður á daginn mun ganga í ákveðna suðaustanátt með rigningu eða slyddu á láglendi á sunnan- og vestanverðu landinu. Það mun hlýna í veðri, en það mun þó taka tíma fyrir sunnanáttina að blása kuldanum burt af landinu.

Á Hellisheiði og í Þrengslum er spáð snjókomu og 10 til 13 metrar á sekúndu frá því um klukkan 15 í dag og fram á kvöld, þegar hlánar. Sömu sögu er að segja af Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Um tíma undir kvöld einnig á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum, segir í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Á vef Veðurstofunnar segir að á morgun sé sunnanátt í kortunum, víða stinningskaldi eða allhvass vindur eftir hádegi.

„Búast má við súld og rigningu og mjög þungbúnu veðri og bætir í rigninguna á vestanverðu landinu seinnipartinn. Þurrara á Norður og Austurlandi og hærra undir skýin. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast í hnjúkaþey norðan- og austanlands. Samfara svona hlýindum ryðja ár og lækir sig gjarnan en víða á norðurhelmingi landsins eru vatnsfarvegir ísi lagðir á meðan vel flestar ár eru opnar sunnan heiða. Stundum myndast klakastíflur sem geta valdið staðbundnum flóðum og jafnvel haft áhrif á vegi, ræsi og brýr. Sama á við ræsi og niðurföll í þéttbýli þar sem það á við, þar þarf að hreina frá svo vatn komist greiðlega í burtu.

Á sunnudag styttir upp og snýst í suðvestanátt, sem verður allhvöss á norðanverðu landinu, en hægari sunnantil. Hitinn þokast aftur niðurávið.

Ef rýnt er í spár lengra fram í tímann virðist sem í byrjun næstu viku eigi að vera hið ljúfasta veður, hægur vindur og bjart veður víða um land. Þokkarlegar hitatölur yfir daginn, eða 5 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Vaxandi sunnanátt, 10-18 m/s síðdegis. Súld og rigning, en hægari vindur og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi.

Á sunnudag: Suðvestan 8-13, en 13-18 á norðanverðu landinu. Víða þurrt og bjart veður. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast austanlands.

Á mánudag og þriðjudag: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum við vesturströndina. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á miðvikudag: Austan og suðaustan 3-8 og bjartviðri, en 8-13 við suðurströndina og lítilsháttar væta þar. Hiti 4 til 10 stig.

Á fimmtudag: Fremur hæg norðaustlæg átt og bjartviðri, en skýjað norðaustantil á landinu. Hiti frá frostmarki norðaustanlands, upp í 9 stig á Suðvesturlandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×