Bezos ætlar upp í geim með bróður sínum Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2021 11:40 Jeff Bezos hyggst láta af stöðu forstjóra Amazon snemma í næsta mánuði, skömmu fyrir áætlaða brottför. Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hyggst ferðast upp í geim með bróður sínum í næsta mánuði. Með í för með Bezos-bræðrunum verður einhver þriðji maður, hæstbjóðandi í fyrirhuguðu uppboði.
Frá þessu greinir geimferðafyrirtækið Blue Origin, en þeir munu ferðast upp í geim í jómfrúarferð geimferjunnar New Shepard. Tilraunir hafa verið gerðar með New Shepard, sem tekur alls sex manns, frá árinu 2012. Bezos segir frá því í myndbandi sem hann birtir á Instagram að hann hafi dreymt um það að ferðast upp í geim frá því að hann var fimm ára gamall. „20. júlí mun ég leggja í þá ferð með bróður mínum. Stærsta ævintýrið, með besta vini mínum,“ segir Bezos í myndbandinu sem sjá má að neðan. View this post on Instagram A post shared by Jeff Bezos (@jeffbezos) Alls hafa verið gerðar tólf tilraunaferðir með New Shepard og hefur flaugin náð rúmlega 100 kílómetra hæð. Í flauginni er að finna stóran glugga sem mun veita farþegum einstakt útsýni, auk þess að þeim verður gefið færi á að upplifa þyngdarleysi í einhverjar mínútur áður en flauginni er aftur snúið til jarðar. Bezos skipar nú annað sætið á lista Forbes yfir ríkustu menn heims, en auðævi hans eru metin á 186 milljarða Bandaríkjadala. Bezos hyggst láta af stöðu forstjóra Amazon snemma í næsta mánuði, skömmu fyrir áætlaða brottför.
Bandaríkin Amazon Geimurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Tölum um neytendamál! Samstarf Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Viðskipti innlent Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira