Ný treyja Newcastle eins og landsliðstreyja Sáda Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2022 12:31 Salem Aldawsari á ferðinni í landsleik með Sádi-Arabíu. Eins og sjá má er nýja varatreyja Newcastle afar lík landsliðstreyjunni. Twitter/Getty Leikmenn Newcastle munu spila leiki á næstu leiktíð í treyju sem þykir nánast nákvæmlega eins og landsliðstreyja Sádi-Arabíu, á fyrstu heilu leiktíðinni eftir að Sádar eignuðust félagið.
Íþróttavöruframleiðandinn Castore framleiðir treyjur Newcastle og aðalbúningur félagsins er svartur og hvítur. Á næstu leiktíð verður varabúningurinn hins vegar hvítur og grænn, samkvæmt enskum fjölmiðlum, eða í sömu litum og landsliðstreyja Sádi-Arabíu. Newcastle United 22-23 Away Kit leaked pic.twitter.com/Ts8wJvwZ05— Ayça (@aycazehraakcay) May 12, 2022 Sádi-arabíski fjárfestingasjóðurinn Public Investment Fund keypti 80 prósent hlut í Newcastle síðasta haust eftir að Mike Ashley hafði átt félagið í 14 ár. Nýju eigendurnir sverja af sér tengsl við stjórnvöld í Sádi-Arabíu en samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar mega félög ekki vera í ríkiseigu. Eignarhaldið hefur engu að síður verið gagnrýnt og nýju treyjurnar gætu ýtt undir þá gagnrýni. Nýir eigendur Newcastle voru fljótir að ráða Eddie Howe inn sem knattspyrnustjóra og undir hans stjórn siglir liðið nú lygnan sjó þegar leiktíðinni er að ljúka. Ljóst er að forríkir eigendur félagsins munu vilja styrkja leikmannahópinn vel í sumar en Howe varaði við því að reglur um fjárhagslegt aðhald myndu hafa áhrif á leikmannakaup sumarsins. Newcastle varði 94 milljónum punda í fimm leikmenn í janúar. „Reglurnar um fjárhagslegt aðhald setja okkur skorður og við verðum að vinna eftir þeim,“ sagði Howe. „Við getum ekki bara farið og eytt peningum í leikmenn eins og félög gerðu kannski hérna áður fyrr, þegar þau gjörbreyttu leikmannahópi sínum í einum félagaskiptaglugga. Það er ekki valmöguleiki fyrir okkur,“ sagði Howe.
Enski boltinn Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Sjá meira