Búið er að loka hringveginum frá Kirkjubæjarklaustri að Djúpavogi vegna óveðurs, en appelsínugul viðvörun er nú í gildi á austurhelmingi landsins og rauð viðvörun tekur gildi klukkan tólf á hádegi á Austfjörðum.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi vegna veðurs á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og hættustigi á Suðurlandi.
Ekkert ferðaveður er á austurhelmingi landsins í dag og er fólk hvatt til að gæta fyrst og fremst að eigin öryggi.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um færð og lokanir á vegum á vef Vegagerðarinnar og twittersíðu Vegagerðarinnar.