Hollenskur framherji til Eyja

Eyjamenn halda áfram að styrkja sig.
Eyjamenn halda áfram að styrkja sig. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við hollenska sóknarmanninn Hans Mpongo og mun hann leika með karlaliðinu á tímabilinu. Kemur hann að láni frá varaliði enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford.

Mpongo, sem er 18 ára gamall, samdi við Brentford B í janúar síðastliðnum eftir að leikið með Needham Market í neðri deildum Englands þar á undan.

Hann fær leikheimild með Eyjamönnum á morgun og getur því tekið þátt í næsta leik liðsins þegar liðið heimsækir FH í Kaplakrika í Bestu deild karla næstkomandi sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert