„Ef að Sara getur byrjað þá byrjar hún“ Sindri Sverrisson skrifar 24. júní 2022 10:01 Sara Björk Gunnarsdóttir var fljót að komast af stað eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn í nóvember og náði að spila með liði Lyon áður en leiktíðinni lauk. Hún er í líklegu byrjunarliði Íslands á EM að mati sérfræðinga Bestu markanna. Puma.com Sara Björk Gunnarsdóttir hefur ekki verið í byrjunarliði í fótboltaleik síðan í mars árið 2021 en sérfræðingar Bestu markanna telja engu að síður að hún verði í byrjunarliði Íslands á EM í Englandi.
Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar spáðu í spilin varðandi það hvaða byrjunarlið Þorsteinn Halldórsson mun reiða sig á í Englandi í næsta mánuði, í sérstakri EM-útgáfu Bestu markanna á Stöð 2 Sport. Þær telja að Sara, Dagný Brynjarsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir verði allar saman á miðju íslenska liðsins, en að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir færist út á vinstri kant til að rýma fyrir Söru. Sara, sem var fyrirliði landsliðsins áður en hún varð ólétt og eignaðist sitt fyrsta barn í nóvember, var síðast í byrjunarliði Íslands þegar liðið tryggði sig inn á EM með sigri gegn Ungverjalandi undir lok árs 2020. Líklegt byrjunarlið Íslands á EM, að mati sérfræðinga Bestu markanna.Stöð 2 Sport „Sara Björk missti náttúrulega helling úr, nýbúin að eignast barn, en við reiknum með henni,“ sagði Helena og Harpa Þorsteinsdóttir tók undir: „Ég vona að hún sé á þeim stað að geta spilað sem mest vegna þess að þetta er okkar allra sterkasta miðja. Ég myndi segja að þetta sé mjög „solid“ miðja á svona móti, við erum náttúrulega svolítið varnarsinnaðar svona en við þurfum að vera það. Það kæmi mér ekki á óvart að hann [Þorsteinn landsliðsþjálfari] róteri þarna og velji hvenær hann ætlar að keyra á Söru og hvenær ekki,“ sagði Harpa og bætti við: „Ef að ég væri Steini þá myndi ég alltaf vilja byrja með Söru inn á. Sara er ekki beint svona „super-sub“. Hún kemur ekkert inn á og breytir endilega leik. Hún er bara ofboðslega „solid“ í því sem hún gerir og við þurfum að byrja þessa leiki vel, og halda skipulagi sem best. Hún er líka með reynslu af stóra liðinu, að spila svona leiki fyrir framan fulla velli, og það telur rosalega mikið. Ef að Sara getur byrjað þá byrjar hún.“ Klippa: Bestu mörkin - Líklegt byrjunarlið á EM Sérfræðingarnir spá því þannig að Agla María Albertsdóttir verði á varamannabekknum en Sveindís Jane Jónsdóttir á sínum stað á hægri kanti og Berglind Björg Þorvaldsdóttir fremst. Telur að Áslaug Munda komi mögulega í stað Hallberu Í vörninni spá sérfræðingarnir í Bestu mörkunum því að Guðný Árnadóttir verði í stöðu hægri bakvarðar, þó að einhver óvissa ríki um hana vegna meiðsla, og að Hallbera Guðný Gísladóttir verði vinstri bakvörður. Sonný Lára Þráinsdóttir benti þó á að Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir veitti Hallberu harða samkeppni, nú þegar hún hefur náð sér af sínum höfuðmeiðslum. Tuesday training at the Reykjavík National stadium. #dóttir pic.twitter.com/Hw0YChYSbd— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 21, 2022 „Miðað við hvernig hún [Áslaug Munda] var að spila síðustu leiki fyrir pásu þá kæmi mér heldur ekki á óvart að hún myndi starta sem vinstri bakvörður,“ sagði Sonný. Sandra Sigurðardóttir verður valin fram yfir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur í markið, að mati sérfræðinganna, og Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir mynda væntanlega áfram aðalmiðvarðapar liðsins. „Glódís er náttúrulega aldrei spurningamerki en einhvern veginn hefur Guðrún laumast þarna inn,“ sagði Helena en Ingibjörg Sigurðardóttir var áður makker Glódísar í vörninni og Sif Atladóttir er einnig til taks sem miðvörður. „Hún [Guðrún] greip sénsinn og hefur haldið vel á sínum spilum. Það er engin ástæða til að taka út leikmann á meðan hann spilar svona vel,“ sagði Mist. „Það er líka svo gott „chemistry“ á milli þeirra og óþarfi að taka neina áhættu með það,“ sagði Harpa.
EM 2022 í Englandi Fótbolti Landslið kvenna í fótbolta Bestu mörkin Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira