Ástarsamband J.Lo og Afflecks hófst í febrúar

Heitasta par í heimi, aftur? Jennifer Lopez hvíslar blíðlega í …
Heitasta par í heimi, aftur? Jennifer Lopez hvíslar blíðlega í eyra síns heittelskaða, Ben Affleck, árið er 2003. FRED PROUSER

Borist hefur til eyrna að Jennifer Lopez og Ben Affleck hafi mögulega átt í leynilegum ástarskrifum síðan í febrúar, en þá á Ben að hafa sent fjölmargar ástarjátningar í tölvupósti til J.Lo.

Síðan þá virðast þau hafa verið í reglulegum tölvupóstssamskiptum og heimildir TMZ herma að þessi samskipti þeirra hafi verið af öðrum toga en aðeins vinalegum. Affleck sagðist ekki þrá neitt heitar en að fá hana aftur í líf sitt.

„Þú átt hjarta mitt“

Sem dæmi: Eftir að Affleck sá ljósmyndir af J.Lo við tökur á kvikmyndinni Shotgun Wedding í Dóminíska lýðveldinu í Karíbahafi í febrúar sendi hann tölvupóst til hennar og sagði að hún væri glæsileg og heitasta ósk sín væri að vera með henni. Heimildir herma að hún hafi kolfallið fyrir ástarjátningum Afflecks: „Þú átt hjarta mitt,“ skrifaði hann. Á þeim tíma var hún trúlofuð Alexi Rodriguez.

Saman á Óskarnum 2003
Saman á Óskarnum 2003 KIM D. JOHNSON

Af þessu má dæma að þarna er forsaga og þessi skyndilegi hittingur í Montana um síðustu helgi sé meira en aðeins vinátta. Við erum mögulega að tala um nýtt Bennifer-æði. Bennifer 2.0.

Bennifer 1.0 árið 2004 á hafnaboltaleik á Fenway Park í …
Bennifer 1.0 árið 2004 á hafnaboltaleik á Fenway Park í Boston REUTERS
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Loka