Biðin að lengjast og skilyrðin þrengjast Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. mars 2024 21:07 Karen Kjartansdóttir fór út til Egyptalands ásamt Aski syni sínum á föstudag til að reyna að koma fjölskyldu ungs Palestínumanns yfir landamærin. Vísir/vilhelm Íslensk kona sem kom frá Egyptalandi í nótt segir að biðin eftir því að koma fólki yfir landamærin frá Gasa virðist vera að lengjast. Henni telst til að um 140 manns hafi hingað til komist yfir landamærin með hjálp Íslendinga og enn séu sjálfboðaliðar staddir úti.
Karen Kjartansdóttir og fjölskylda hennar hafa síðustu misseri aðstoðað pilt frá Palestínu sem er hér á Íslandi en er ekki með samþykkta fjölskyldusameiningu. „En auðvitað í sömu þörf og aðrir að bjarga fjölskyldu sinni, hann er með móður, tvær systur og bróður á Gasa og þau hafa dvalið í Rafah undanfarið,“ segir Karen, sem kom frá Egyptalandi nú í nótt. Mo, ungi maðurinn sem Karen og fjölskylda hennar hafa tekið undir sinn verndarvæng, ræðir hér við móður sína, systur og bróður. Henni hafi borist til eyrna fyrir helgi að verið væri að þrengja skilyrðin sem þurfi að uppfylla til að vera gjaldgengur á útgöngulista frá Gasa. Náinn ættingi þurfi nú að vera með í för til að fá fólk skráð. „Þannig að við ákváðum að stökkva til með þriggja klukkustunda fyrirvara ég og sonur minn af því að við vildum ná að hafa systur móður hans með okkur á skrifstofunni til að gæta þess að við fengjum þessa skráningu. Það hafðist á sunnudaginn.“ Vonir hafi staðið til að fjölskyldan sem þau aðstoða kæmist yfir landamærin eftir tvær vikur. En biðin er að lengjast, að sögn Karenar. Hún áréttar mikilvægi þess að hjálpa þeim sem hægt er að hjálpa, eins og hópur Íslendinga hefur verið að gera síðustu vikur og mánuði. „Þá held ég að hafi tekist að koma hingað til um 140 manns, setja þau á útgöngulistann, með þessari aðferð og nú er verið að reyna að nýta alla þá peninga sem hafa safnast hingað til, til að aðstoða fólk sem best og hreinlega gera sem mest gagn í þessum málum,“ segir Karen. „Ég veit af [íslensku] fólki sem er nú í Egyptalandi og fékk fréttir í nótt að það væri verið að sprengja allt í kringum þær fjölskyldur sem það er að aðstoða,“ segir Karen Kjartansdóttir.
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa marka vatnaskil. Ísraelar færu gegn stofnsáttmála SÞ með því að lúta ekki ályktuninni. Hún telur ólíklegt að Hamas sleppi gíslunum, eins og ályktunin kveður á um. 25. mars 2024 19:28 Netanjahú í fýlu við Biden Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur hætt við að senda hóp erindreka til Bandaríkjanna eins og til stóð, eftir að sendiherra Bandaríkjanna sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasaströndinni. Netanjahú segir hjásetuna koma niður á viðleitni Ísraela til að frelsa gísla úr haldi Hamas. 25. mars 2024 19:15 Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gasa á meðan Ramadan stendur en það er föstumánuður múslima. Ramadan er hálfnað eins og stendur og lýkur þann 9. apríl næstkomandi. 14 meðlimir ráðsins af 15 samþykktu ályktuna. 25. mars 2024 14:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Sjá meira
Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa marka vatnaskil. Ísraelar færu gegn stofnsáttmála SÞ með því að lúta ekki ályktuninni. Hún telur ólíklegt að Hamas sleppi gíslunum, eins og ályktunin kveður á um. 25. mars 2024 19:28
Netanjahú í fýlu við Biden Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur hætt við að senda hóp erindreka til Bandaríkjanna eins og til stóð, eftir að sendiherra Bandaríkjanna sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasaströndinni. Netanjahú segir hjásetuna koma niður á viðleitni Ísraela til að frelsa gísla úr haldi Hamas. 25. mars 2024 19:15
Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gasa á meðan Ramadan stendur en það er föstumánuður múslima. Ramadan er hálfnað eins og stendur og lýkur þann 9. apríl næstkomandi. 14 meðlimir ráðsins af 15 samþykktu ályktuna. 25. mars 2024 14:57