Stóðu orðlaus og horfðu á hraunstrókinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. maí 2021 14:24 Skjáskot úr myndbandi sem Sólný tók af hraunstróknum í gærkvöldi. „Ég er enn að ná mér niður, þetta var svo ruglað,“ segir Sólný Pálsdóttir, sem var stödd við eldgosið í Geldingadölum seint í gærkvöldi þegar hraunstrókar stóðu með hléum upp úr virka gígnum á svæðinu.
Breyting varð á gosinu í virka gígnum í Geldingadölum skömmu eftir miðnætti. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að um einhvers konar þrýstingsbreytingu sé að ræða sem lýsi sér í því að virknin slokknar niður í tvær mínútur í senn og rýkur síðan upp. Mbl ræddi fyrst við Sólnýju í dag en hún segir í samtali við Vísi að hún hafi farið ásamt eiginmanni sínum að gosinu í gærkvöldi. Þau hjónin búa í Grindavík og eru því með eldgosið því sem næst í bakgarðinum. Sólný við gosstöðvarnar í upphafi eldgossins. „Maður upplifir í hverri ferð eitthvað nýtt, við fórum á sunnudag eftir að byrjaði í fyrstu ferðina og við höfum farið reglulega og fylgst með. Svo vorum við eiginlega komin í fráhvörf því það voru komnar tvær vikur síðan við fórum síðast,“ segir Sólný. „Svo þegar við komum að gosinu um klukkan ellefu, hálf tólf þá var svo mikil mengun og byrjað að reka fólk frá. Ég að sjálfsögðu hlýði björgunarsveitarfólkinu og gasmælarnir voru á fullu, það heyrðist mjög hátt í þeim.“ Þau hjónin sneru því við og gengu til baka. Þegar þau voru komin um fjögur hundruð metra frá gosinu þegar hraunstrókur kom allt í einu upp úr gígnum og blossinn af honum lýsti upp umhverfið. Hjónin sneru þá baki í gosið – en sneru sér við og strókarnir héldu áfram „Ég sá alveg fyrir mér bíómynd þar sem væri eitthvað logandi fyrir aftan mig því þetta var svo óraunverulegt. Svo dettur allt í dúnalogn en við rífum upp símana og erum akkúrat með þá á lofti þegar þetta gerist aftur. Svo stóðum við orðlaus og horfðum á þetta.“ Sólný og maður hennar náðu myndböndum af því þegar strókur kom upp úr gígnum í gærkvöldi. Myndefnið má nálgast í spilaranum hér fyrir ofan. Mikilfengleg sjón.Sólný Pálsdóttir Gosið út um stofugluggann hjá Sólnýju í Grindavík.Sólný Pálsdóttir
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Eldgos í Fagradalsfjalli Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira