Lífverðirnir máttu ekki gera þarfir sínar hjá Ivönku og Jared Samúel Karl Ólason skrifar 14. janúar 2021 22:45 Jared Kushner og Ivanka Trump. EPA/MICHAEL REYNOLDS Lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna hefur greitt þrjú þúsund dali á mánuði í leigu lítillar kjallaraíbúðar nærri heimili Ivönku Trump, dóttur Donalds Trump forseta, og Jared Kushner í Washington DC svo þeir geti farið á klósettið.
Þetta hefur verið gert frá september 2017 og þegar leigusamningurinn rennur út í september mun fyrirkomulagið hafa kostað 144 þúsund dali. Það samsvarar um 18,6 milljónum króna. Ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi er sögð sú að hjónin bönnuðu lífvörðum sínum að nota þau sex klósett sem finna má heimili þeirra. Í byrjun var notast við kamra en svo fóru lífverðirnir að ferðast til heimilis Barack Obama, fyrrverandi forseta, sem býr þar nærri. Þar hafði bílskúr verið breytt í aðstöðu fyrir lífverðina. Það fyrirkomulag var þó stöðvað eftir að lífvörður Ivönku og Jared olli óreiðu á klósettinu, ef svo má að orði komast. Þá byrjuðu lífverðirnir að fara heim til Mike Pence, varaforseta, sem býr í sama hverfi en þó tiltölulega langt í burtu, og gera þarfir sínar þar eða í veitingahúsum í hverfinu. Að endingu var niðurstaðan sú að leigja kjallaraíbúð hjá nágranna þeirra hjóna. Þetta kemur fram í frétt Washington Post. Talsmaður Hvíta hússins sagði þessa sögu ranga og að forsvarsmenn lífvarðasveitarinnar, sem kallast á ensku Secret Service, hafi tekið þá ákvörðun að lífverðirnir færu ekki inn á heimili hjónanna. Heimildarmaður Washington Post segir þó að hjónin hafi meinað lífvörðunum að koma inn á um 460 fermetra heimili þeirra. Þá segir miðillinn að nágrannar þeirra hjóna, sem eru margir hverjir á móti ríkisstjórn Trumps, hafi fylgst með ferðalögum lífvarðanna á milli húsa og um hverfið. Eins og áður segir var svo endað á því að leigja íbúðina. Eigandi íbúðarinnar sagði Washington Post að það hefði ekki komið sér á óvart þegar lífverðirnir bönkuðu upp á. Hún hafi fylgst með ferðum þeirra lengi.
Bandaríkin Donald Trump Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Sjá meira