Messi sneri aftur í stórsigri

Lionel Messi sneri aftur á fótboltavöllinn í kvöld.
Lionel Messi sneri aftur á fótboltavöllinn í kvöld. AFP

París SG vann sannfærandi 4:0-heimasigur á Reims í frönsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Parísarliðið er nú með 50 stig og átta stiga forystu á Nice á toppi deildarinnar.

Marco Veratti skoraði eina mark fyrri hálfleiks og þeir Sergio Ramos og Danilo Pereira komust einnig á blað. Þriðja markið var sjálfsmark hjá Wout Faes.

Lionel Messi kom inn á sem varamaður á 63. mínútu og lék sínar fyrstu mínútur eftir að hafa greinst með kórónuveiruna fyrr í mánuðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert