Anton úr leik í Búdapest

Anton Sveinn McKee.
Anton Sveinn McKee. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ant­on Sveinn McKee og liðsfé­lag­ar hans í Toronto Tit­ans eru úr leik í ISL-mótaröðinni í sundi þetta árið en undanúrslitin kláruðust í dag.

Anton, sem hefur staðið sig frábærlega í deildinni undanfarnar vikur, var sjötti í 100 metra bringusundi í dag er hann synti á tímanum 58,04 sekúndum. Íslands- og Norðurlandamet hans í greininni er 56,30 sekúndur.

Toronto Titans er sem stendur í fjórða sæti og á ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppnina en aðeins tvö lið fara þangað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert