Í ár mun opna fyrsti knattspyrnutengdi skemmtigarðurinn Íslandi sem heitir Fótboltaland. Eigendur Fótboltalands eru Sena ehf og Jón Þór Eyþórsson hugmyndasmiður verkefnisins. Staðsetning Fótboltalands, sem verður í rúmlega 1.000 fermetra húsnæði, verður tilkynnt síðar.

„Í Fótboltalandi verður hægt að sækja afþreyingu fyrir börn og fullorðna þar sem vinsælasta íþrótt heims er í forgrunni. Með stofnun Fótboltalands er ekki bara verið að uppfylla þarfir knattspyrnuáhugafólks heldur einnig mæta vaxandi eftirspurn eftir heilbrigðri afþreyingu,“ segir í fréttatilkynningu.

Í Fótboltalandi verður að finna hátt í 20 mismunandi þrautabrautum. Þær munu skiptast í keppnisbrautir og skemmtibrautir. Í keppnisbrautum eru gestir að keppast um að fá sem flest stig úr hverri braut og sigra þannig vini eða fjölskyldu í viðkomandi brautum. Í skemmtibrautum snýst allt um að hafa gaman, þó svo að alltaf sé hægt að stilla upp keppni í þeim brautum líka kjósi gestir svo.

Fram kemur að notast verði við helstu tækninýjungar í Fótboltalandi og má þar nefna RFID armbönd sem halda utan um stigaskor keppanda og knattspyrnutæki sem notuð eru á æfingarsvæðum stærstu knattspyrnuklúbba heims.