Foreldrar skulu gera ráðstafanir Margrét Björk Jónsdóttir og Ólafur Björn Sverrisson skrifa 4. júní 2023 19:30 Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB segir stöðuna einfalda: Fólkið þeirra krefjist sömu launa fyrir sömu vinnu og í öðrum sveitarfélögum. Vísir/Vilhelm Freyja Steingrímsdóttir samskiptastjóri BSRB segir lítið hafi breyst í kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Enn er fundað í karphúsinu en allsherjarverkfall hefst að óbreyttu á morgun.
Foreldrar leikskólabarna ættu að gera ráðstafanir og gera ráð fyrir að til verkfalla komi á morgun hjá félagsmönnum. Um er að ræða verkfall sem nær yfir 2500 manns í 29 sveitafélögum. Starfsmenn 150 vinnustaða, þar af sjötíu leikskóla auk sundlauga og bæjarskrifstofa, munu þá leggja niður störf. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu BSRB. Rætt var við samningsaðila í kvöldfréttum Stöðvar 2, áður en þær gengu til fundar í dag: „Við erum komin til að reyna að ná sátt og til að semja,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands sveitarfélaga. „Við byrjum alla daga bjartsýn og jákvæð.“ Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir stöðuna einfalda: Fólkið þeirra krefjist sömu launa fyrir sömu vinnu og í öðrum sveitarfélögum. „Miðað við þær vendingar sem hafa verið á síðustu dögum þá er það í raun það atriði sem stendur út af. Fólkið okkar hefur sagt mjög skýrt að það ætlar ekki að vera á lægri launum en fólk sem starfar þeim við hlið á ársgrundvelli,“ segir hún. Hvernig metur þú stöðuna. Stefnir í allsherjarverkfall? „Það er erfitt að segja til um það. Ef það kemur einhver afstöðubreyting frá sambandinu núna þá getum við gengið hratt og vel frá þessu,“ sagði Sonja Ýr í dag. Staðan nú í kvöld er hins vegar mjög viðkvæm, að sögn samskiptastjóra. Strandaði á kröfum um afturvirkni Inga Rún hjá Sambandi sveitarfélaga segir að skoðað hafi verið hækka lægstu laun verulega. „Samningstilboðið sem liggur á borðinu gefur öllum verulegar góðar hækkanir. Þetta er besti samningur sem hefur verið í boði á opinberum vinnumarkaði í þessum kjaraviðræðum. Þannig við teljum okkur vera að bjóða gríðarlega vel,“ segir Inga. Fyrir helgi sagði hún að viðræðurnar strönduðu á kröfu BSRB um afturvirkni. Hún segir að ekki verði orðið við þeim kröfum. „Við höfum hafnað því, því þarna er að ræða kjarasamning sem er að fullu efndur og útrunninn.“ Sonja segir hinsvegar að ekki sé verið að horfa til afturvirkni í lengri tíma heldur til þess að félagsfólk þeirra sé gríðarlega ósátt við að búa ekki við sömu kjör á ársgrundvelli og fólkið sem starfar þeim við hlið. „Í dag er það raunverulega þetta verkefni, að fólk verði ekki lengur óánægt. Þau eru sár og reið yfir því að þurfa að leggja niður störf til að knýja fram þessa kröfu um sömu laun fyrir sömu störf. Stóra verkefnið er að finna sáttina.“ Það er ljóst að mikið er undir og áhrif allsherjarverkfalls sem hefst að óbreyttu á morgun verða gífurleg. Inga segir yfirvofandi verkfall án vafa hafa áhrif á fundarhöld dagsins. „Já ég held að það hljóti að gera það og við tökum þetta öll mjög alvarlega. Ég efast ekki um það,“ segir Inga.
Kjaramál Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Kjaraviðræður 2022-23 Sveitarstjórnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira